Þú ert hér://Tag: Agnar Már Magnússon

Gömul saga og glæný

2023-10-03T09:56:27+00:0030. september 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi af margföldu tilefni sjötugan söngleik þeirra bræðra og snillinga Jóns Múla og Jónasar Árnasona, Deleríum búbónis. Bergur Þór Ingólfsson lagaði verkið að nýjum tíma og leikstýrir sýningunni eins og fer ekki framhjá neinum. Þar er skörp kímnigáfa hans við stjórn, glöggt auga hans fyrir tímasetningum og óbrigðult næmi hans á [...]

Nostalgían lifnar við

2021-12-06T16:36:33+00:006. desember 2021|

Það dekrar við fortíðarþrána í manni að horfa á uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Emil í Kattholti sem var frumsýnd um helgina á stóra sviði Borgarleikhússins. Ég sá aðra sýningu, í gær sunnudag, vegna þess að leikhúsfélagi minn tæplega fjögra ára var enn í smitgát á laugardaginn en sloppinn í gær. Sviðið hennar Evu Signýjar Berger [...]

Drengurinn og dansinn

2019-05-20T17:12:38+00:008. mars 2015|

Þær voru ólíkar leiksýningarnar tvær sem við sáum þessa helgi. Í annarri var flókin saga sögð með einföldustu ráðum, tveir sögumenn á Sögulofti sem skiptu frásögninni með sér, enginn hljóðheimur nema raddirnar og fótatakið á timburgólfinu. Hins vegar fimmtíu manna hópur leikara og dansara plús hljómsveit sem sagði einfalda sögu með öllum ráðum sem gott [...]

Sléttfull matskeið af sykri

2019-06-18T12:08:47+00:0023. febrúar 2013|

Ofurbarnfóstran Mary Poppins sviptist með austanvindinum inn á sviðið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi í skrautsýningu sem varla hefur áður sést slík og þvílík hér á landi. Söngleikurinn sem Richard og Robert Sherman sömdu ásamt Cameron Mackintosh upp úr kvikmyndinni frá 1964 og bókum P.L. Travers um söguhetjuna krefst margra sviðslistamanna og mikillar tækni og Borgarleikhúsmenn [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]