Þú ert hér://elin

About elin

This author has not yet filled in any details.
So far elin has created 875 blog entries.

Föst á Djöflaeyjunni – engin huggun þar

2019-05-06T17:20:01+00:004. september 2016|

Það var annaðhvort rétt fyrir eða eftir áramótin áttatíu og þrjú og fjögur sem ég las fyrst um fólkið í Gamla húsinu og Thulekampinum, þá sendi Einar Kárason kaflann um daginn þegar Hreggviður reyndi að setja heimsmet í kúluvarpi til Tímarits Máls og menningar sem ég ritstýrði þá. En ég man ágætlega hvernig mér leið ... Lesa meira

*Not the singer

2019-05-08T09:53:59+00:001. júlí 2016|

Við fórum aftur í leikhús í gærkvöldi, nú í Tjarnarbíó á The Greatest Show in Iceland starring Björk Guðmundsdóttir – not the singer. Ég hef ekki verið dugleg að sjá sýningar á ensku fyrir erlenda ferðamenn, var þó um daginn búin að ná í miða á sýninguna í Hörpu um Íslendingasögur en varð að senda ... Lesa meira

Fjölbreytnin lifi

2019-05-08T10:07:33+00:0030. júní 2016|

Loksins í gær komst ég á nýjustu sýningu Leikhópsins Lottu, Litaland, sem var frumsýnd í lok maí. Í Reykjavík sýna þau í Ævintýraskógi Elliðaárdalsins, að venju, en þau fara líka beinlínis um allt land með sýninguna. Í þetta sinn semur Anna Bergljót Thorarensen sitt eigið ævintýri í stað þess að vinna út frá þekktum minnum ... Lesa meira

Palli Sigsgaard og Páll Hermanns

2019-05-24T14:18:51+00:003. júní 2016|

Hermann Stefánsson. Leiðin út í heim. Sæmundur, 2015. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2016 Tilgangur skáldskaparins er að segja fregnir af brúðunni sem hefur verið stolið af lesandanum, að senda honum bréf frá brúðunni. Slíkt bréf sættir lesandann ekki sem spaklegast við missi hennar heldur sýnir honum fram á, líkt og barni, að ... Lesa meira

Að taka síma í fóstur

2019-05-08T10:03:10+00:0024. maí 2016|

Það er alltaf gaman að fá að kynnast nýjum eða nýlegum erlendum leikverkum eftir okkur áður ókunna höfunda. Ekki er verra þegar eins vel tekst til með uppsetninguna og hjá Charlotte Bøving í gærkvöldi þegar leikritið Sími látins manns var frumsýnt í Tjarnarbíó. Það verk er að vísu að verða tíu ára (frumsýnt í Washington ... Lesa meira

Hleyptu aðeins þeim rétta inn

2019-05-08T10:50:56+00:006. maí 2016|

Það er greinilegt hvað þeir njóta lífsins, geimfararnir okkar í Sóma þjóðar. Þeir hafa komist lífs af úr dvöl sinni um borð í geimstöðinni Pandóru í hittifyrra og eru nú á leiðinni til plánetunnar KOI í geimfarinu TF-VON. Þegar þeir leggja upp í könnunarleiðangurinn eftir nokkur hundruð ár er jörðin orðin óbyggileg en á KOI ... Lesa meira

Veruleikaflótti í raunveruleikaþætti

2019-05-08T11:13:39+00:001. maí 2016|

Það er stöðugur höfuðverkur umsjónarmanna með leiklistarnemum að finna verk sem passar fyrir hópinn, helst þannig að öll fái þau gott efni til að glíma við. Í ár hélt leikarabraut LHÍ leikritasamkeppni, eins og hefur verið gert stöku sinnum áður, og verkið sem sigraði, Við deyjum á Mars eftir Jónas Reyni Gunnarsson, er nú sýnt ... Lesa meira

Ekkert veit á gott

2019-05-08T11:39:13+00:0030. apríl 2016|

Ef það er til eitt íslenskt skáldverk sem ég hefði fullyrt að ekki væri nokkur leið að skopstæla þá er það Svartfugl Gunnars Gunnarssonar. Þetta gera þó Hugleikarar núna í nýju leikverki eftir Ljóta hálfvitann Ármann Guðmundsson, Feigð, sem sýnt er í Kartöflugeymslunum ofan við Elliðaár. Ármann leikstýrir líka. Í Skollakoti býr nirfillinn Greipur bóndi ... Lesa meira

Hafa allir rétt á skoðunum sínum?

2019-05-08T13:39:17+00:0021. apríl 2016|

Krakkarnir í Stúdentaleikhúsinu rannsaka fordóma í íslensku samfélagi í leiksýningunni Yfir strikið eftir leikstjórann, Ólaf S. K. Þorvaldz, sem er sýnd í Kartöflugeymslunum handan Elliðaánna. Þátttakendur í sýningunni eru ellefu, sex stúlkur og fimm strákar, þau ganga undir sínum eigin nöfnum en taka að sér ýmis hlutverk, tala ýmist frá eigin brjósti eða þvert um ... Lesa meira

Veisla í farangrinum

2019-05-27T12:50:08+00:0018. apríl 2016|

Eftir Guðrúnu Nordal Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2016 1 Á sama tíma og ég skrifa þessa hugleiðingu við ysta haf verða til um víða veröld milljónir texta á öllum heimsins tungumálum sem raðast inn á vefinn. Mannkynið hefur aldrei skrifað eins mikið og einmitt nú. Þessi ofgnótt rafrænna texta, sem við tökum ... Lesa meira