Þú ert hér://Leikdómar

Leikdómar Silju Aðalsteinsdóttur eru ómissandi partur af menningarlífi Íslendinga.

Sungið um feðginasamband og plast

2019-03-13T16:20:07+00:0025. október 2018|

Áður en ég hlýddi á Plastóperuna eftir Gísla Jóhann Grétarsson og Árna Kristjánsson með fimmta bekk Laugarnesskóla í gærmorgun var ég viðstödd morgunsönginn í skólanum með öllum börnunum – í fyrsta skipti síðan ég kvaddi þennan skóla fyrir sextíu og einu ári! Þau sungu skólasönginn (sem var ekki til í minni tíð) og tvö falleg ... Lesa meira

Ó, þér unglingafjöld …

2019-03-13T16:23:43+00:0015. október 2018|

Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði frumsýndi í gær fimmta verkið (telst mér til) sem sérstaklega er unnið af og ætlað áhorfendum á unglingsaldri en höfðar þó til eldri aldurshópa – vegna þess að öll höfum við verið unglingar. Fyrsta skiptið heitir stykkið og fjallar eins og nafnið bendir til um ýmis „fyrstu skipti“ í lífi fólks og ... Lesa meira

Vel heppnuð afmælisveisla

2019-03-13T16:28:00+00:0013. október 2018|

Leikfélag Selfoss heldur upp á sextugsafmæli sitt í ár og stóri viðburðurinn á afmælisárinu var frumsýndur í gærkvöldi í leikhúsinu í bænum, leiksýningin Á vit ævintýranna. Félagið var svo bráðheppið að fá til liðs við sig sérfræðing í ærslafengnum ævintýrasýningum, Ágústu Skúladóttur, og saman hafa þau unnið litríka sýningu úr þrenns konar efniviði: ævintýrinu um ... Lesa meira

Dauðleikinn er uppstillt baðherbergi

2019-03-13T16:50:50+00:004. október 2018|

Leikhópurinn Allir deyja frumsýndi í gærkvöldi Griðastað eftir Matthías Tryggva Haraldsson í Tjarnarbíó. Verkið er að uppruna útskriftarverkefni Matthíasar úr Listaháskólanum og hann leikstýrir sjálfur. Ég varð fyrst vör við Matthías Tryggva fyrir þrem árum á Ungleik í Borgarleikhúsinu, þar átti hann metnaðarfullt verk um heimsendi og sannleikann (hvorki meira né minna) en hafði ekki ... Lesa meira

Það komast ekki allir til tunglsins

2019-03-13T16:43:47+00:0029. september 2018|

Við eigum írska leikskáldinu Marie Jones meira að þakka en margir átta sig á. Það er vegna hennar að við fengum að sjá Stefán Karl á sviði eftir að hann var eiginlega hættur að leika vegna veikinda og sú síðasta frábæra frammistaða komst meira að segja í sjónvarpið og er til fyrir afkomendur okkar um ... Lesa meira

Er hlæjandi að þessu?

2019-05-27T15:57:07+00:0024. september 2018|

Það fer ekkert milli mála að efniviður háðsádeilu Guðmundar Brynjólfssonar, Svartlyngs, sem leikfélagið GRAL sýnir nú í Tjarnarbíó, er „Höfum hátt“-hreyfingin sem felldi ríkisstjórn í fyrra. Leikstjóri er líka Bergur Þór Ingólfsson sem stóð í miðju átakanna. Þessi efniskjarni er þó dulinn framan af. Vandræði Svartlyngs ráðherra (Sveinn Ólafur Gunnarsson) og ráðstýru hans (Sólveig Guðmundsdóttir) ... Lesa meira

Nóra snýr aftur

2019-05-08T10:35:51+00:0022. september 2018|

„Hvert ætli þú hefðir svo sem getað farið?“ spyr Vilborg Dagbjartsdóttir Nóru Ibsens í ljóðinu „Erfiðir tímar“ (Kyndilmessa 1971) og áreiðanlega hefur þessi spurning sótt á huga margra undanfarin tæp 140 ár. Varð hún vændiskona í Kristjaníu? Skúringakona? Vinnukona? Eða gekk hún í sjóinn? Svo litla trú höfðum við á hugmyndaflugi hennar og seiglu og ... Lesa meira

Ræningjakóngsins dóttir – hér er hún!

2019-03-13T17:02:56+00:0016. september 2018|

Söngleikurinn um Ronju ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren, Anninu Enckell og Sebastian var frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í gær fyrir fleytifullum sal af alveg ævintýralega fallegum, áhugasömum og stilltum börnum á öllum aldri. Endalaust fjölbreytta leikmynd, litríka búninga og heillandi lýsingu hönnuðu Finnur Arnar Arnarson, María Th. Ólafsdóttir og Ólafur Ágúst Stefánsson, Hjörtur Ingvi Jóhannsson ... Lesa meira

Lífið séð í ljósi dauðans

2019-03-13T17:11:27+00:0015. september 2018|

Áður en ég settist við að skrifa um sýninguna Allt sem er frábært eftir Duncan Macmillan, sem var frumsýnd á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi, las ég viðtal við Charlotte Bøving í Fréttablaði dagsins. Þar segir hún frá sýningu sem hún er að vinna um dauðann, séðan frá lífinu. Mér fannst þetta skondið af því ... Lesa meira

Getur þetta gerst hér?

2019-03-13T17:11:18+00:004. september 2018|

Hannesarholt troðfylltist óvænt í gærkvöldi þegar nýtt verk var leiklesið þar, Fáir, fátækir, smáir, eftir höfund sem ekki vildi láta nafns síns getið. Árni Kristjánsson leikstýrði og hafði hóað saman stórum hópi fagmanna til að flytja verkið. Helga Björnsdóttir sá um útlit sýningarinnar og Guðni Franzson um tónlistina. Fólk sem ólst upp við útvarpsleikritin sem ... Lesa meira