Þú ert hér://Tag: Þorsteinn Vilhjálmsson

Undir tampi

2023-09-14T14:26:46+00:0014. september 2023|

Haukur Már Helgason: Tugthúsið. Mál og menning 2022. 453 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2023 Hvernig á að skilgreina þessa bók? Skýrsla, kallar hún sig sjálf: Skýrsla skrifuð af Páli nokkrum Holt, fráfarandi öryggisverði Stjórnarráðsins, til að rannsaka mögulegar orsakir óþægindanna, eða reimleikanna, sem hafa gert vart við sig í fornfrægu húsinu. [...]

Tól með sál

2023-02-16T10:00:59+00:0016. febrúar 2023|

Kristín Eiríksdóttir: Tól. JPV útgáfa, 2022. 349 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2023. Í riti sínu Stjórnspekinni skrifaði forngríski heimspekingurinn Aristóteles fræga greiningu á stöðu þræla innan borgríkisins gríska. Þrællinn er, eins og hann orðaði það, organon empsykhon, þ.e. tæki, eða tól, með sál. Hann er þannig aðeins til á forsendum meistara [...]

Hvolpavit

2019-05-16T11:47:53+00:0019. febrúar 2019|

Hundakæti: Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881–1884. Þorsteinn Vilhjálmsson annaðist útgáfu. Mál og menning, 2018. 224 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2019 Árið 1993 sýndi Ríkissjónvarpið umdeilda sjónvarpsþætti Baldurs Hermannssonar, Þjóð í hlekkjum hugarfarsins. Ef til vill væri réttara að kalla þættina alræmda, svo hörð viðbrögð vöktu þeir í þjóðfélaginu. Markmið höfundarins var allsherjar uppgjör [...]