Þú ert hér://Tag: Þórhildur Þorleifsdóttir

Veslings Marat

2023-02-08T16:12:40+00:0027. janúar 2023|

Áhorfendum á Marat/Sade í Borgarleikhúsinu er boðið upp á tvær snilldarhugmyndir. Önnur er beinlínis leikritið sjálft, Marat/Sade eða ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn de Sade markgreifa eftir þýska leikskáldið Peter Weiss. Það er varla hægt að hugsa sér geggjaðri hugmynd en að horfa á frönsku [...]

Hvað er auður og afl …?

2019-05-22T14:08:47+00:0019. október 2014|

Maður mátti hafa sig allan við að fá ekki alvarlegt kast af þjóðernishroka undir frumsýningunni á Don Carlo í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi. Á snilldarlega hönnuðu sviði Þórunnar Sigríðar Þorgrímsdóttur, frumlega lýstu af Páli Ragnarssyni, steig fram hver glæsilegi söngvarinn af öðrum og lék og söng hlutverk sitt í einni mestu óperu Verdis undir styrkri [...]

Ólíkindalæti

2019-06-19T11:29:32+00:0013. október 2012|

Gagnrýnendur eru sem kunnugt er þekktir fyrir að fyrirlíta gamanleiki og farsa, helstu kassastykki leikhúsanna, þeir (gagnrýnendurnir) eru auðvitað svo háfleygir að það rignir upp á nasirnar á þeim og þess vegna þola þeir ekki að fólk bara skemmti sér í leikhúsinu. Nú vil ég alls ekki vera af þessari sort, enda leiðist mér yfirleitt [...]

Glóandi kvika undir hrauni

2019-08-08T17:08:27+00:0025. febrúar 2012|

Það sem Eugene O’Neill vissi svo vel var að tilfinningarnar sem við berum til okkar nánustu eru aldrei neitt eitt, ást, hatur, reiði, öfund, fyrirlitning, heldur flókin blanda af þessu öllu saman. En eitt er að vita og annað að koma í orð og athöfn eins og hann gerir svo snilldarlega í Dagleiðinni löngu sem [...]