Þú ert hér://Tag: Sviðslistadeild Listaháskólans

Mamma hetja í stríðinu

2019-05-22T10:33:45+00:0017. maí 2019|

Listaháskólinn hefur staðið fyrir mikilli leikhúsveislu undanfarið því útskriftarnemendur á sviðshöfundabraut hafa frumsýnt tíu verk víðsvegar í Reykjavík í maímánuði auk þess sem nýju leikararnir frumsýndu Mutter Courage eftir Bertolt Brecht norður á Akureyri í þýðingu Ólafs Stefánssonar og undir stjórn Mörtu Nordal. Þau frumsýndu svo aftur í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Mér tókst ekki [...]

Aftur og aftur

2019-05-08T16:05:21+00:009. mars 2016|

Nemar við Sviðslistadeild Listaháskólans sýndu í gærkvöldi leikritið Þvott í Tjarnarbíó. Þetta er einþáttungur, einfaldur í ytri gerð en lúmskur. Höfundur og leikstjóri er Matthías Tryggvi Haraldsson sem hefur áður vakið athygli fyrir leiktexta. Bak við stóra frítt standandi glerrúðu á sviðinu stendur Jens (Árni Beinteinn) við vinnu sína. Hann ber sápulög á alla rúðuna [...]

La donna e mobile

2019-05-10T14:21:56+00:0020. desember 2015|

Í Sýningu um ást og karókí sem þrír nemendur í sviðslistadeild Listaháskóla Íslands frumsýndu í húsnæði skólans í gær undirbýr Adolf Smári Unnarsson, Dolli, trúlofun sína og Dísu, skólasystur sinnar. Adolf Smára hef ég séð nokkrum sinnum áður í Stúdentaleikhúsinu og er alveg himinlifandi yfir því að hann skuli ætla að leggja þetta starf fyrir [...]

Börn götunnar

2020-01-29T12:16:19+00:0026. apríl 2010|

Þau eru geysilega flink, ungmennin sjö í útskriftarhópi Listaháskólans í leiklist, og í lokaverkefni sínu fá þau gott tækifæri til að sýna það. Í Stræti eftir Jim Cartwright eru ein tuttuguogfimm hlutverk sem þau skipta á milli sín, þó ekki jafnt. Hilmir Jensson leikur til dæmis bara Scullery, náungann sem kynnir okkur fyrir götunni sinni, [...]