Þú ert hér://Tag: Sunneva Ása Weisshappel

Fátæktin var mín fylgikona

2019-05-27T11:27:16+00:009. apríl 2017|

Það verður ekki tekið frá honum Þorleifi Erni Arnarssyni, honum tekst að koma manni á óvart. Það tókst honum líka í gærkvöldi, þó nokkrum sinnum. Sýningin var Álfahöllin hin umrædda á stóra sviði Þjóðleikhússins, eins konar revía um leikhúsið – sjálft fyrirbærið Þjóðleikhús Íslendinga, bæði hús og stofnun – og samfélag okkar á þessari stundu. [...]

Blekkingameistarinn Jagó og listir hans

2019-05-03T16:10:50+00:0023. desember 2016|

„Hrörnar þöll / sú er stendur þorpi á“ segir í Hávamálum. Upphafssviðið í Óþelló Shakespeares, sem frumsýndur var í gærkvöldi á stóra sviði Þjóðleikhússins, minnti á þessi orð. Á sviðinu stendur tré, beinvaxið og fagurt, í annars gróðurlausri urð. Við fáum að horfa á það drjúga stund og njóta þess að sjá ljósin leika í [...]

Njála OK

2019-05-10T13:46:25+00:0031. desember 2015|

Eiginlega er sýning Leikfélags Reykjavíkur á Njálu, sem frumsýnd var á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, eins og Njála sjálf: löng og dramatísk, viðburðarík og djúp, ofbeldisfull, blóðug, hæðin og fyndin, spennandi og þó langdregin og leiðinleg á köflum. Jafnvel tímaskekkjurnar, þegar persónur bregða fyrir sig nýlegum enskuslettum eða bresta út í amerískum dægurlagasöng eða [...]