Þú ert hér://Tag: Rafael Bianciotto

Trúðslæti um ást og missi

2022-10-12T15:56:18+00:0010. október 2022|

Við fórum loksins í Tjarnarbíó í gærkvöldi og sáum Hið stórfenglega ævintýri um missi eftir Grímu Kristjánsdóttur sem einnig leikur bæði hlutverkin, sjálfa sig og hliðarsjálfið Jójó trúð. Með henni á sviðinu er tónlistarmaðurinn Þórður Sigurðarson og einnig tekur virkan þátt í sýningunni ljósameistarinn Arnar Ingvarsson. Ég er ekki frá því að það staka atriði [...]

Hvað eykur alheims hag?

2019-05-16T14:28:24+00:001. október 2015|

Trúðarnir Úlfar (Bergur Þór Ingólfsson) og Bella (Kristjana Stefánsdóttir) eru enn komnir á fulla ferð á litla sviði Borgarleikhússins. Þeir hafa áður fært okkur Dante og Virgil í Gleðileiknum guðdómlega og sjálfan Jesú litla frá Nasaret. Í trúðaóperunni Sókrates sem var frumsýnd í kvöld er það heimspekin sem þeir kanna á sinn sérstæða hátt. Með [...]

Ég elska hana, hún elskar annan mann

2020-01-31T15:44:55+00:0015. mars 2009|

Þrettándakvöld er eitt alskemmtilegasta leikrit Vilhjálms Shakespeare, hryllilega fyndið og fyndnin þar að auki af mörgum tegundum. Þar ber erótíska fyndni hæst en líka er meinleg fyndni áberandi, misskilningsfyndni, kynusli eins og hann gerist fyndnastur hjá þessum yndislega höfundi og svona mætti lengi halda áfram að telja. Þetta verk hefur maður séð í mörgum uppsetningum og [...]

Villtum manni bent á rétta veginn

2020-01-31T16:19:32+00:0011. maí 2008|

Það er ekki ónýtt að láta segja sér allt um handanheiminn á einu kvöldi, eins og gert er í spunaverkinu Dauðasyndunum í Borgarleikhúsinu núna undir stjórn Ítalans Rafaels Bianciotto. Trúðarnir Barbara, Gjóla, Úlfar og Za-ra hafa kynnt sér kvæðið Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante Alighieri og gera sitt besta til að endursegja okkur ófróðum þessa miklu sögu sem [...]