Þú ert hér://Tag: Petr Hlousek

Allt er alltaf alls staðar í allra besta lagi?

2026-02-28T14:10:15+00:0027. febrúar 2026|

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í gærkvöldi í Samkomuhúsinu í höfuðstað Norðurlands leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar af Birtíngi Voltaires undir leikstjórn sama. Birtíng þýddi á sínum tíma Halldór Laxness (1945). Snjalla og marghliða leikmynd hannaði Sigríður Sunna Reynisdóttir; Björg Marta Gunnarsdóttir skapaði endalausa gnótt bráðskemmtilegra búninga en Petr Hloušek teiknaði lifandi myndir á baktjaldið þegar mikið lá [...]

„Búum til betri heim“

2023-03-06T11:53:38+00:006. mars 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær á stóra sviðinu fjölskyldusöngleikinn Draumaþjófinn eftir Björk Jakobsdóttur sem byggður er á skáldsögu Gunnars Helgason með sama nafni frá 2019. Dillandi fjörug tónlistin er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson sem er líka tónlistarstjóri en söngtextana sömdu þau sundur og saman Björk, Gunnar og Hallgrímur Helgason. Ævintýraleg leikmyndin, dularfullur, margslunginn, sannfærandi og hrífandi [...]

Ríkisbubbinn, eiginkonan, viðhaldið og kokkurinn

2019-10-12T18:20:22+00:0012. október 2019|

Sex í sveit í uppsetningu Borgarleikhússins er blessunarleg hlátursprengja nú sem fyrr. Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri hefur valið vel í hlutverkin, þarna eru leikarar sem víla ekki fyrir sér að halda uppi sturluðu fjöri í hátt í þrjá klukkutíma en fá að vísu vel þeginn matartíma í miðju kafi. Verkið er eignað franska farsaskáldinu Marc [...]

Drengurinn og dansinn

2019-05-20T17:12:38+00:008. mars 2015|

Þær voru ólíkar leiksýningarnar tvær sem við sáum þessa helgi. Í annarri var flókin saga sögð með einföldustu ráðum, tveir sögumenn á Sögulofti sem skiptu frásögninni með sér, enginn hljóðheimur nema raddirnar og fótatakið á timburgólfinu. Hins vegar fimmtíu manna hópur leikara og dansara plús hljómsveit sem sagði einfalda sögu með öllum ráðum sem gott [...]

Sléttfull matskeið af sykri

2019-06-18T12:08:47+00:0023. febrúar 2013|

Ofurbarnfóstran Mary Poppins sviptist með austanvindinum inn á sviðið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi í skrautsýningu sem varla hefur áður sést slík og þvílík hér á landi. Söngleikurinn sem Richard og Robert Sherman sömdu ásamt Cameron Mackintosh upp úr kvikmyndinni frá 1964 og bókum P.L. Travers um söguhetjuna krefst margra sviðslistamanna og mikillar tækni og Borgarleikhúsmenn [...]