Þú ert hér://Tag: Nemendaleikhúsið

Drauma-Smiðjan

2019-06-15T15:40:10+00:0024. mars 2013|

Ég fann fyrir tilfinningu eftir sýningu Nemendaleikhússins á Draumi á Jónsmessunótt í Smiðjunni í gærkvöldi sem sumt leikhúsfólk hefur fjölyrt um í ævisögum sínum: ég vildi að sýningin væri ekki búin heldur héldi áfram – eða byrjaði upp á nýtt! Mig langaði ekki til að rjúfa töfrana og fara út úr húsinu. Leikritið er auðvitað [...]

Órlendingar hafa orðið

2019-07-24T19:09:38+00:0021. apríl 2012|

Þau voru full af smitandi gleði og orku útskriftarnemarnir úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands á frumsýningu eigin leikverks í gærkvöldi. Enda kunna þau margt og fara vel með það sem þau hafa lært. Verkið heitir Óraland og er sett saman úr fjölmörgum atriðum eins og (gasalega langur) skemmtiþáttur í sjónvarpi. Umfjöllunarefnin eru ýmist tekin beint úr [...]

Börn götunnar

2020-01-29T12:16:19+00:0026. apríl 2010|

Þau eru geysilega flink, ungmennin sjö í útskriftarhópi Listaháskólans í leiklist, og í lokaverkefni sínu fá þau gott tækifæri til að sýna það. Í Stræti eftir Jim Cartwright eru ein tuttuguogfimm hlutverk sem þau skipta á milli sín, þó ekki jafnt. Hilmir Jensson leikur til dæmis bara Scullery, náungann sem kynnir okkur fyrir götunni sinni, [...]

Mala domestica

2020-01-30T15:15:42+00:0022. janúar 2010|

Heimilisböl er verra öðru böli, út á það ganga ófá leikrit og sögur, enda óhamingjusamar fjölskyldur óhamingjusamar hver á sinn hátt, eins og skáldið benti á. Í leikriti Sigtryggs Magnasonar, Bráðum hata ég þig, sem var frumsýnt í Nemendaleikhúsinu í gærkvöldi, hittum við fjórar húnvetnskar systur. Steinunn, Snæfríður og Anna búa enn á heimaslóðum, Halla [...]