Þú ert hér://Tag: Mikael Emil Kaaber

Ennþá gerast ævintýr

2026-07-12T15:43:26+00:0011. júlí 2026|

Afturámóti frumsýndi í gærkvöldi í Háskólabíó ævintýraleikinn Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks eftir Einar Baldvin Brimar. Leikstjóri er Egill Andrason og hann annaðist líka tónlistarstjórn og hljóðhönnun; Helga Brá Brimar hannaði fjölda ævintýralegra búninga en María Jóngerð Gunnlaugsdóttir hannaði lýsingu. Í þennan ástardrykk blandar höfundur saman efni úr hinum ólíklegustu áttum: ævintýrum, riddarasögum, óperum og arabískum nóttum [...]

Elskaðu náunga þinn

2024-08-11T16:46:58+00:0011. ágúst 2024|

Geim/vélmenna/stuðsöngleikurinn Vitfús Blú eftir Egil Andrason var frumsýndur í gærkvöldi hjá Afturámóti í Háskólabíó. Meðhöfundar eru Hafsteinn Níelsson og Kolbrún Óskarsdóttir. Tónlistin er líka eftir Egil og hana flytur sex manna hljómsveit á sviðinu af gífurlegu fjöri. Árið er 3033. Þrjú þúsund ár eru liðin frá krossfestingu Jesú sonar Maríu og vélmennin hafa í raun [...]

Nýtt blóð (og aðrir vessar) í sviðslistum

2024-04-05T08:50:13+00:004. apríl 2024|

Ég var svo heppin að ná að sjá útskriftarsýningar tveggja nemenda á sviðshöfundabraut LHÍ núna kringum páskana; bæði lofa góðu um framtíðina. Það fyrra var Mergur eftir Katrínu Lóu Hafsteinsdóttur, tónverk frekar en leikverk þó að vissulega byggi hver þátttakandi til sína persónu eftir föngum. Þeir fengu dálítinn tíma til að móta persónu sína því [...]