Þú ert hér://Tag: María Pálsdóttir

Þegar ástin var bönnuð

2020-10-12T10:42:17+00:005. október 2020|

Maí 1933. Mig hefur dreymt heim á hverri nóttu síðan ég kom hingað, svo þú sérð að hugurinn er hjá ykkur. Samt líður mér vel. Ferðin gekk vel, ekkert sjóveik, fór svo með drossíu hingað og það hefði verið lystitúr á vegi eins og hér er, hefði ég ekki verið að fara á hæli … [...]

Dóri verður pabbi

2019-05-03T16:35:28+00:006. nóvember 2016|

Leikflokkurinn Pörupiltar treður nú upp með glænýja sýningu í Tjarnarbíó undir heitinu Who´s the Daddy! þótt textinn sé á íslensku (að mestu leyti). Raunar er þetta fræðslukvöld fyrir nýbakaða feður með fyrirlestri sem Dóri Maack (Sólveig Guðmundsdóttir) heldur en hann er einmitt nýlega búinn að eignast barn með sinni ástkæru Öldu Dís. Og það er [...]

Eru það kannski töfrar?

2019-05-08T17:48:26+00:0017. janúar 2016|

Leikmyndin í sýningunni Hvítt sem frumsýnd var í dag í Hafnarborg á vegum Gaflaraleikhússins er undurfalleg: Hvítt tjald og lítil hvít fuglahús á misháum stólpum á hvítu gólfi með hvítt baktjald. Hvíti liturinn er ekki bara snjóhvítur heldur líka kremhvítur, rjómahvítur og hrímhvítur í bland svo úr verður hvít litadýrð. Það er Catherine Wheels leikhópurinn [...]

Er gigtin fór að jafna um Jón …

2019-06-12T11:28:44+00:0027. janúar 2014|

Akureyri var alveg eins og túristapóstkort um helgina, hvít jörð, heiður himinn, logn og vægt frost, enda var hún að taka á móti mannfjölda að sunnan til að sjá nýja og nýstárlega uppsetningu á klassísku verki eftir einn frægasta Akureyringinn, Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson. Einn af leikstjórunum okkar sem hefur gert það gott erlendis [...]

Vömb, keppur, laki, vinstur

2019-08-13T14:55:45+00:006. nóvember 2011|

Þær eru orðnar nokkrar kynslóðirnar sem hafa hlustað á Lög unga fólksins með Hrekkjusvínunum og sungið sig hásar með. Og ekki verður maður leiður á plötunni hvað sem hún er spiluð oft. Nú hefur hópur einlægra aðdáenda hennar spunnið sögu sem lögin eru fléttuð inn í og sett hana á svið. Stundum falla lögin eðlilega [...]

Myrkur er ekki til

2019-08-23T15:16:58+00:0024. september 2011|

Það er fjör í leikhúsunum þessar vikurnar, metkortasala í báðum stóru húsunum í Reykjavík og uppselt á sýningar langt fram í tímann. Og í Þjóðleikhúskjallaranum var stappfullt í gærkvöldi á kabarettsýninguna Uppnám, enda hefur hún fengið dúndurviðtökur gagnrýnenda. Það er reyndar sérstakt fagnaðarefni, ekki síst fyrir roskna borgarbúa, að Leikhúskjallarinn skuli verða reglulegur vettvangur fyrir [...]

Jebbs

2020-01-30T11:51:37+00:0014. mars 2010|

Fíasól er flutt í Kúlu Þjóðleikhússins og þangað geta krakkar heimsótt hana. Hún er nefnilega að ná sér eftir flensuna og getur ekki komið út að leika. En við megum vel koma inn til hennar og sjá hana leika sér í hosiló við Ingólf Gauk og Pippu systur. Ég býst við að einhverjum ungum leikhúsgesti [...]