Þú ert hér://Tag: Listahátíð í Reykjavík

Hvað kemur með?

2020-09-07T21:55:19+00:005. september 2020|

Oft hef ég velt því fyrir mér á langri ævi hvað ég myndi hafa með mér ef ég þyrfti skyndilega að flýja að heiman vegna hamfara af einhverju tagi. Valið yrði sjálfsagt erfiðara hjá mér en Alex (Kjartan Darri Kristjánsson / Óðinn Benjamín Munthe), söguhetju barnaleikritsins Tréð eftir Söru Martí Guðmundsdóttur og Agnesi Wild sem [...]

Vitið þér enn, eða hvað?

2019-03-13T17:21:20+00:0018. júní 2018|

Það liggur í rauninni beint við að gera eins og Robert Wilson í Eddu, sem sýnd var í Borgarleikhúsinu í gær á Listahátíð, að byrja hana í svarta myrkri: Ár var alda, það er ekki var, segir í Völuspá, var þar hvorki sandur né sær né svalar unnir … Við sátum sem sé þarna í [...]

Að taka síma í fóstur

2019-05-08T10:03:10+00:0024. maí 2016|

Það er alltaf gaman að fá að kynnast nýjum eða nýlegum erlendum leikverkum eftir okkur áður ókunna höfunda. Ekki er verra þegar eins vel tekst til með uppsetninguna og hjá Charlotte Bøving í gærkvöldi þegar leikritið Sími látins manns var frumsýnt í Tjarnarbíó. Það verk er að vísu að verða tíu ára (frumsýnt í Washington [...]

Í iðrum hvalsins

2019-05-27T16:46:01+00:0025. maí 2014|

Þegar komið er að Brimhúsinu við Geirsgötu þessa dagana blasir mikill hvalskjaftur við og ef maður leggur í að ganga inn um hann er komið inn í mikið rautt gin með geysistórri tungu á gólfi (sem ágætt er að tylla sér á ef maður þarf að bíða lengi). Þetta er upphafið að mynd-, tón- og [...]

Þrefaldur Pétur Gautur

2019-06-19T12:03:16+00:001. júní 2012|

Ég hafði gaman af sýningu Luzerner Theater á Pétri Gaut í Þjóðleikhúsinu á miðvikudagskvöldið og finnst verulega gott hjá Listahátíð að flytja hana inn þó að sjálfsagt hafi helsta ástæðan verið sú að henni stýrir ungur íslenskur leikstjóri, Þorleifur Örn Arnarsson. En ég treysti mér illa til að skrifa um hana vegna þess hvað ég [...]

Maður og náttúra

2019-06-19T12:08:22+00:0027. apríl 2012|

Brúðuheimar og Bernd Ogrodnik frumsýndu í gær í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu og í samvinnu við Listahátíð leikgerð hans af Gamla manninum og hafinu, frægri nóvellu Ernests Hemingway sem hefur komið út á íslensku í þýðingu Björns O. Björnssonar. Hvergi er getið á upplýsingablaði með sýningunni hvort það er hans þýðing sem notuð er eða hvort [...]

Fyndin, fjörug og fögur

2019-08-23T16:39:41+00:004. júní 2011|

Klúbburinn / Mynd: Matthías Árni Ingimarsson Ég er ekki manneskja til að skrifa af þekkingu um sýninguna á Klúbbnum sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi á vegum Listahátíðar. Þetta var orðlaus sýning, einu mannlegu hljóðin voru stunur, más og dæs, túlkun efnisins fór fram gegnum dans og látbragðsleik og þó að ég [...]