Þú ert hér://Tag: Ívar Örn Sverrisson

Það dýrmætasta

2019-05-16T17:32:03+00:0029. maí 2015|

Norski leikhópurinn Jo Strømgren kompani sýndi Eldhúsið í Tjarnarbíó í gærdag við góðar undirtektir. Þetta er verk um umburðarlyndi og kærleika og var fyrsta sýning leikhópsins sem ætluð var börnum sérstaklega. Leikararnir, Ívar Örn Sverrisson og Hanne Gjerstad Henrichsen, fluttu textann á íslensku og íslenskuskotinni norsku en þulartexti var á íslensku. Minn sjö ára leikhúsvani [...]

Landamæraerjur

2019-05-16T17:36:25+00:0020. maí 2015|

Þeir sem hafa saknað Ívars Arnar Sverrissonar af íslensku leiksviði ættu að grípa tækifærið í vikunni og sjá sýningarnar tvær sem norski leikhópurinn hans sýnir nú í Tjarnarbíó. Við sáum aðra þeirra í gærkvöldi, dansleiksýninguna The Border, þar sem Ida Holten Worsøe leikur á móti Ívari Erni en höfundur, hönnuður leikmyndar, leikstjóri og danshöfundur er [...]

Er Bella æt?

2020-01-31T15:35:46+00:0028. mars 2009|

Sædýrasafnið eftir Marie Darrieussecq var heimsfrumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi undir stjórn franska leikstjórans Arthurs Nauzyciel og í þýðingu Sjóns. Margt varð til að byggja upp spennu fyrir þessa sýningu. Það var samið sérstaklega fyrir íslenska Þjóðleikhúsið (soldið 2007, að vísu) og sýningin fer héðan – með sínum íslensku leikurum – til Orleans í [...]

Já, skyldi maður ekki hafa nóg?

2020-01-31T15:50:46+00:0024. febrúar 2009|

Þjóðleikhúsið frumsýndi Kardemommubæinn á sunnudaginn, fullu húsi af fallegum börnum til mikillar kátínu. Selma Björnsdóttir leikstýrði og setti að ýmsu leyti sitt mark á sýninguna, til dæmis voru leikarar ungir, ljónið var póstmódern og las blöðin og dansarnir (sem Birna og Guðfinna Björnsdætur sáu um) krakkalega eróbikklegir. Sviðið hans Brians Pilkingtons er litríkt og fallegt og búningarnir [...]