Þú ert hér://Tag: Halldóra Geirharðsdóttir

Sleppa ekki héðan í bráð

2020-01-30T11:12:32+00:0011. apríl 2010|

Við göngum inn í glæsilega leikmynd á Nýja sviði Borgarleikhússins þegar við mætum á Dúfurnar, leikrit Davids Gieselmanns sem var frumsýnt í gærkvöldi. Ilmur Stefánsdóttir hefur skapað verkinu smart umgjörð með ferkílómetravís af hvítu gardínuefni, gráum og hvítum bekkjum, hvítum lömpum, hvítum leðursessum og einu glitrarndi gervijólatré innst í vinstra horni. Svo koma leikararnir inn, [...]

Hnípin þjóð í vanda

2020-01-30T15:10:03+00:0024. janúar 2010|

Inni í geysistóru fuglabúri híma sjö manneskjur. Við og við hellast yfir þær stórir haugar af gluggaumslögum sem þær síðan vaða í. Haugarnir hækka og hækka. Þær gera fálmkenndar tilraunir til að taka á málunum, flokka umslögin, raða þeim, en sumir halda bara á þeim í fanginu; æ stærri fangfylli. Meðan á þessu gengur segja [...]

Við erum öll Jesús

2020-01-30T15:40:30+00:0022. nóvember 2009|

Trúðarnir Barbara (Halldóra Geirharðsdóttir) og Úlfar (Bergur Þór Ingólfsson) eru enn komin á kreik á Litla sviði Borgarleikhússins, nýbúin að færa okkur Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante. Nú hafa þau fengið trúðinn Bellu (Kristjana Stefánsdóttir) í lið með sér og leika á sinn sérstaka hátt fyrir okkur sjálft jólaguðspjallið í verkinu Jesús litli. Benedikt Erlingsson leikstýrir [...]

Villtum manni bent á rétta veginn

2020-01-31T16:19:32+00:0011. maí 2008|

Það er ekki ónýtt að láta segja sér allt um handanheiminn á einu kvöldi, eins og gert er í spunaverkinu Dauðasyndunum í Borgarleikhúsinu núna undir stjórn Ítalans Rafaels Bianciotto. Trúðarnir Barbara, Gjóla, Úlfar og Za-ra hafa kynnt sér kvæðið Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante Alighieri og gera sitt besta til að endursegja okkur ófróðum þessa miklu sögu sem [...]