Þú ert hér://Tag: Filippía I. Elísdótti

Vill einhver elska 29 ára gamla konu í hjólastól?

2024-09-13T09:24:11+00:0013. september 2024|

Taktu flugið ,beibí! eftir Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur var frumsýnt í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Ilmur Stefánsdóttir leikstýrir verkinu og hún hannaði líka snjalla leikmyndina utan um eina húsgagnið á sviðinu: hjólastól söguhetjunnar. Skemmtilegir og listrænir búningar eru verk Filippíu I. Elísdóttur; lýsingin sem oft tók mið af eða stýrði jafnvel stemningunni er hönnuð af Ástu [...]

Veslings Marat

2023-02-08T16:12:40+00:0027. janúar 2023|

Áhorfendum á Marat/Sade í Borgarleikhúsinu er boðið upp á tvær snilldarhugmyndir. Önnur er beinlínis leikritið sjálft, Marat/Sade eða ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn de Sade markgreifa eftir þýska leikskáldið Peter Weiss. Það er varla hægt að hugsa sér geggjaðri hugmynd en að horfa á frönsku [...]

„Já, ávinningur verður stór – ef ert‘ í kór“

2022-09-30T14:18:46+00:0018. september 2022|

Það var hátíðisdagur í Þjóðleikhúsinu í fyrrakvöld þegar söngleikurinn Sem á himni eftir Carin Pollak og Kay Pollak (handrit) og Fredrik Kempe (tónlist) var frumsýndur á stóra sviðinu: Framundan spennandi leikhúsvetur eftir löng og leiðinleg covid-ár. Þórarinn Eldjárn á þýðinguna fínu, leikstjóri er Unnur Ösp Stefánsdóttir en tónlistarstjórn í höndum Jóns Ólafssonar. Sagan í Sem á [...]

Ást, hatur, þrá, ofbeldi

2022-03-23T13:15:59+00:0013. mars 2022|

Napolí-fjórleikur Elenu Ferrante opnar lesanda sýn inn í líf tveggja stúlkna sem eru fæddar undir lok seinna stríðs í fátækrahverfi í Napolí á suður Ítalíu og um leið á umhverfi þeirra, „hverfið“, borgina og smám saman landið allt, söguna, pólitíkina og ekki síst kvennapólitíkina, eftir því sem þær stöllur vaxa úr grasi. Þessari sýn reyna [...]