Þú ert hér://Tag: Egill Ingibergsson

Er gigtin fór að jafna um Jón …

2019-06-12T11:28:44+00:0027. janúar 2014|

Akureyri var alveg eins og túristapóstkort um helgina, hvít jörð, heiður himinn, logn og vægt frost, enda var hún að taka á móti mannfjölda að sunnan til að sjá nýja og nýstárlega uppsetningu á klassísku verki eftir einn frægasta Akureyringinn, Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson. Einn af leikstjórunum okkar sem hefur gert það gott erlendis [...]

Margslunginn veruleiki

2019-06-12T15:22:55+00:008. september 2013|

Frumsýningar þessa sunnudags voru gerólíkar að flestu leyti. Hættuför í Huliðsdal eftir Sölku Guðmundsdóttur sem Soðið svið sýnir í Kúlu Þjóðleikhússins er viðburðaríkt ævintýri, fullt af óvæntum uppákomum og furðulegum persónum en grunnurinn ákaflega raunverulegur. Blik eftir Bretann Phil Porter sem Artik sýnir í Gamla bíó í þýðingu Súsönnu Svavarsdóttur er hversdagsraunsæi í sinni afbrigðilegustu [...]

Drauma-Smiðjan

2019-06-15T15:40:10+00:0024. mars 2013|

Ég fann fyrir tilfinningu eftir sýningu Nemendaleikhússins á Draumi á Jónsmessunótt í Smiðjunni í gærkvöldi sem sumt leikhúsfólk hefur fjölyrt um í ævisögum sínum: ég vildi að sýningin væri ekki búin heldur héldi áfram – eða byrjaði upp á nýtt! Mig langaði ekki til að rjúfa töfrana og fara út úr húsinu. Leikritið er auðvitað [...]

Nýtt líf í skugga dauðans

2019-06-19T11:03:17+00:0028. október 2012|

Bíómynd Akis Kaurismäki I hired a contract killer (Ég réð mér leigumorðingja, 1990) var minnilega skemmtileg þó stutt væri (tæpar 80 mínútur). Agli Heiðari Antoni Pálssyni og áhöfn hans hjá Leikfélagi Akureyrar, sem völdu þetta verk, er því tvöfaldur vandi á höndum: að búa til frumlega og skemmtilega leiksýningu sem ekki gerir bíómyndinni skömm til [...]

Órlendingar hafa orðið

2019-07-24T19:09:38+00:0021. apríl 2012|

Þau voru full af smitandi gleði og orku útskriftarnemarnir úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands á frumsýningu eigin leikverks í gærkvöldi. Enda kunna þau margt og fara vel með það sem þau hafa lært. Verkið heitir Óraland og er sett saman úr fjölmörgum atriðum eins og (gasalega langur) skemmtiþáttur í sjónvarpi. Umfjöllunarefnin eru ýmist tekin beint úr [...]

Banvænar ástríður

2019-08-08T17:28:41+00:0018. febrúar 2012|

Leikhópurinn Aldrei óstelandi hefur gert óhamdar ástríður að sérgrein sinni. Enn er í fersku minni útfærsla hans á Fjalla-Eyvindi í fyrra og í sýningunni Sjöundá í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu tekur hann nú fyrir hina hryllilegu og átakanlegu sögu af fólkinu á bænum Sjöundá á Rauðasandi sem Gunnar Gunnarsson túlkaði á sinn hátt í skáldsögunni Svartfugli. [...]

Svart og hvítt

2020-01-30T14:58:18+00:0031. janúar 2010|

Leiksýningarnar tvær sem ég sá um helgina voru býsna ólíkar. Ekki segi ég kannski að ég hafi farið öfganna á milli en ekki langt frá því. Á föstudagskvöldið sáum við hjónin Tilbrigði við stef eftir Strindberg og Þór Rögnvaldsson í salnum uppi í Iðnó. Í gær lá leiðin á Algjöran Sveppa eftir Gísla Rúnar Jónsson í Íslensku óperunni. Hvort [...]

Mala domestica

2020-01-30T15:15:42+00:0022. janúar 2010|

Heimilisböl er verra öðru böli, út á það ganga ófá leikrit og sögur, enda óhamingjusamar fjölskyldur óhamingjusamar hver á sinn hátt, eins og skáldið benti á. Í leikriti Sigtryggs Magnasonar, Bráðum hata ég þig, sem var frumsýnt í Nemendaleikhúsinu í gærkvöldi, hittum við fjórar húnvetnskar systur. Steinunn, Snæfríður og Anna búa enn á heimaslóðum, Halla [...]