Þú ert hér://Tag: Bragi Valdimar Skúlason

„Ég verð að taka þetta, elskan“

2025-06-22T15:36:01+00:0022. júní 2025|

Hallveig Rúnarsdóttir og Áslákur Ingvarsson endurlífga óperuna Símann eftir ítalsk-ameríska tónskáldið Gian Carlo Menotti (1922–2007) í Iðnó þessa viku. Þau sýndu hana á Óperudögum 2022 og ´23 þar sem hún naut mikilla vinsælda og í þessari viku er lag fyrir þá sem ekki sáu hana þá. Pálína Jónsdóttir leikstýrir, meðleikari á píanó er Hrönn Þráinsdóttir [...]

„Eina reddingin sem reddar því að þessi redding reddist er sönn ást!“

2024-03-25T20:06:11+00:003. mars 2024|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær söngleikinn Frost sem byggður er á Disneykvikmyndinni ofurvinsælu, Frozen. Fjarlægari kveikja að verkinu er ævintýrið um Snædrottninguna eftir H.C. Andersen. Ég sá sýninguna degi fyrr, á aðalæfingunni á föstudagskvöldið, og skrifa um þá sýningu. Handritið er eftir Jennifer Lee, tónlist og söngtextar eru eftir Kristen Anderson-Lopez og Robert Lopez en Bragi Valdimar [...]

Orkusprengjan Fíasól

2023-12-06T16:11:21+00:003. desember 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gær barnaleikritið Fíasól gefst aldrei upp á stóra sviðinu. Textinn er unninn upp úr fimm geysivinsælum bókum eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur sem komu út á tímabilinu 2004–2018, og ekki er það síst síðasta bókin, samnefnd leikverkinu, sem setur svip sinn á sýninguna. Leikgerðina unnu þær Maríanna Klara Lúthersdóttir og Þórunn Arna [...]

Föst á Djöflaeyjunni – engin huggun þar

2019-05-06T17:20:01+00:004. september 2016|

Það var annaðhvort rétt fyrir eða eftir áramótin áttatíu og þrjú og fjögur sem ég las fyrst um fólkið í Gamla húsinu og Thulekampinum, þá sendi Einar Kárason kaflann um daginn þegar Hreggviður reyndi að setja heimsmet í kúluvarpi til Tímarits Máls og menningar sem ég ritstýrði þá. En ég man ágætlega hvernig mér leið [...]

„Líttu alltaf á lífsins björtustu hlið“

2019-06-12T10:59:54+00:0022. febrúar 2014|

Eitt er alveg víst: Félagarnir snjöllu í Monty Python hafa haft óstjórnlega gaman af að setja saman upprunalega verkið sem núna heitir Spamalot og var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Hilmis Snæs Guðnasonar. Þetta er grín á sögur sem þeir hafa lesið í skóla og utan skóla þegar þeir voru krakkar [...]

Balalalalalalalallið – á Bessastöðum

2019-08-24T14:00:23+00:004. febrúar 2011|

Það hefur verið svolítið í tísku undanfarin ár að búa til þjóðhöfðingja í sviðsverkum eða sjónvarpi, ég minnist sérstaklega bandarísku seríunnar West Wing þar sem Martin Sheen bjó til nær fullkominn forseta handa Könum (og sem hafði áreiðanlega áhrif á síðustu forsetakosningar vestra) og dönsku seríunnar Borgen þar sem Sidse Babett Knudsen skapar Dönum nær [...]