Þú ert hér://Tag: Bjarni Frímann Bjarnason

Hlægilega sorglegur Tsjekhov

2020-01-12T12:13:31+00:0012. janúar 2020|

Nýjárs- og afmælissýning Leikfélags Reykjavíkur, Vanja frændi eftir Anton Tsjekhov, var frumsýnd í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Gunnar Þorri Pétursson þýddi verkið á tilgerðarlausa, auðskiljanlega og fallega íslensku og öll textavinna í sýningunni var aðdáunarverð. Sú einkunn átti sannarlega við fleira. Við erum stödd á sveitasetri Aleksanders Serebrjakovs prófessors í [...]

Allir vilja endilega gifta sig

2019-09-16T15:24:10+00:0016. september 2019|

Íslenska óperan sýnir nú gamanóperuna Brúðkaup Fígarós eftir W.A. Mozart og Da Ponte, einhverja alvinsælustu óperu allra tíma, í Þjóðleikhúsinu þar sem fer einkar vel um hana. Sagan er óttaleg endaleysa en lögin eru dásamleg og fjörið smitandi þegar vel tekst til eins og í þetta sinn. Leikstjórinn John Ramster og Bridget Kimak leikmyndahönnuður nota [...]

Stjarna fædd

2019-03-18T13:29:53+00:0010. mars 2019|

Það mega landar mínir eiga að þeir vita hvenær þeir verða vitni að listrænum stórviðburði. Í lok frumsýningar í Íslensku óperunni í gærkvöldi var hverjum hópnum af öðrum fagnað vel og innilega: dönsurum, fjölmennum Kór Íslensku óperunnar, einsöngvurum. Hrólfur Sæmundsson (Giorgio Germont) fékk innilegt lófatak þegar hann gekk inn þriðji síðastur. Næstur kom Elmar Gilbertsson [...]