Þú ert hér://Tag: Bergur Þór Ingólfsson

Vandinn að vera unglingur

2020-01-30T11:46:32+00:0020. mars 2010|

Það vildi svo skemmtilega til í vikunni að ég sá tvo söngleiki um líf unglinga, sýningar sem gáfu mér óvænt tækifæri til að bera saman flutning framhaldsskólanema á verki um líf jafnaldra sinna og tilveru í samtímanum og lærðra leikara á þrítugs- og fertugsaldri sem freistuðu þess að flytja tveggja áratuga gamalt verk um reykvíska [...]

Hnípin þjóð í vanda

2020-01-30T15:10:03+00:0024. janúar 2010|

Inni í geysistóru fuglabúri híma sjö manneskjur. Við og við hellast yfir þær stórir haugar af gluggaumslögum sem þær síðan vaða í. Haugarnir hækka og hækka. Þær gera fálmkenndar tilraunir til að taka á málunum, flokka umslögin, raða þeim, en sumir halda bara á þeim í fanginu; æ stærri fangfylli. Meðan á þessu gengur segja [...]

Við erum öll Jesús

2020-01-30T15:40:30+00:0022. nóvember 2009|

Trúðarnir Barbara (Halldóra Geirharðsdóttir) og Úlfar (Bergur Þór Ingólfsson) eru enn komin á kreik á Litla sviði Borgarleikhússins, nýbúin að færa okkur Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante. Nú hafa þau fengið trúðinn Bellu (Kristjana Stefánsdóttir) í lið með sér og leika á sinn sérstaka hátt fyrir okkur sjálft jólaguðspjallið í verkinu Jesús litli. Benedikt Erlingsson leikstýrir [...]

Bjössi hleypur af sér hornin

2020-01-30T15:51:58+00:008. nóvember 2009|

Í rauninni er Horn á höfði, eldfjöruga barna og fjölskylduleikritið sem Grindvíska atvinnuleikhúsið (GRAL) sýnir núna, um háalvarlegt efni. Hver kannast ekki við að hafa vaknað að morgni og haft allt á hornum sér, jafnvel hrakið frá sér eina vininn sinn af tómri fýlu? Þetta kemur einmitt fyrir Björn (Víðir Guðmundsson) og það í bókstaflegri [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]

Írsk óhamingja

2019-04-03T14:58:51+00:008. nóvember 2008|

Ég man ekki hvort ég las það eða heyrði einhvern segja að í nýju sýningunni í Borgarleikhúsinu á írska leikritinu Vestrinu eina sæjum við hvað væri hægt að sökkva djúpt, og við gætum ekki kvartað fyrr en við værum farin að pissa í fötu og hætt að borða mat. Víst er að Martin McDonagh hlífir [...]

Villtum manni bent á rétta veginn

2020-01-31T16:19:32+00:0011. maí 2008|

Það er ekki ónýtt að láta segja sér allt um handanheiminn á einu kvöldi, eins og gert er í spunaverkinu Dauðasyndunum í Borgarleikhúsinu núna undir stjórn Ítalans Rafaels Bianciotto. Trúðarnir Barbara, Gjóla, Úlfar og Za-ra hafa kynnt sér kvæðið Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante Alighieri og gera sitt besta til að endursegja okkur ófróðum þessa miklu sögu sem [...]