Þú ert hér://Tag: Ásta Gísladóttir

Fjörugur og fyndinn hráskinnaleikur

2019-03-15T09:56:57+00:0021. apríl 2018|

Leikfélagið Hugleikur frumsýndi sína fyrstu sýningu í nýju Hugleikshúsi við Langholtsveg í gærkvöldi. Húsið er þekkt sem Fóstbræðraheimilið en gestir Hugleikara ganga inn baka til. Þetta er góður staður og fer vonandi vel um félagið þar. Nýja verkið heitir Hráskinna og er eftir þekkt Hugleiksskáld, Ármann Guðmundsson, Ástu Gísladóttur, Sigríði Báru Steinþórsdóttur og Þorgeir Tryggvason, [...]

Sögulegur afmælissöngleikur

2019-05-28T00:09:45+00:0013. apríl 2014|

Áhugaleikfélagið Hugleikur er þrítugt í ár og setur nú upp sína fertugustu sýningu í fullri lengd í Tjarnarbíó. Þetta er söngleikurinn Stund milli stríða eftir Þórunni Guðmundsdóttur, ekta hugleiksk skemmtun undir stjórn Jóns St. Kristjánssonar. Óhætt er að hvetja alla sem unna góðum söngtextum, áheyrilegum og söngvænum lögum og hnyttnu, sögulegu spéi til að drífa [...]

Að skila eða ekki

2019-06-12T15:46:50+00:0029. apríl 2013|

Hugleikur frumsýndi í gærkvöldi nýtt leikrit eftir Ástu Gísladóttur, Spilaborgir, í húsnæði leikfélagsins við Eyjarslóð. Leikstjórar voru þeir gamalreyndu hugleikarar Sigurður H. Pálsson og Þorgeir Tryggvason en leikararnir voru nýir – í mínum augum að minnsta kosti. Það er greinilega enginn hörgull á fólki sem langar til að vera með í áhugaleikfélagi í Reykjavík. Aðalpersóna Spilaborga [...]

Heimsfrægð eða dauði

2020-01-24T16:32:12+00:007. maí 2010|

Ég fór að sjá nýjasta Hugleikinn í gærkvöldi í nýju húsnæði þess ágæta áhugamannaleikfélags úti í Örfirisey, Rokk. Það var alveg þreföld ánægja. Í fyrsta lagi að þessi yndislegi hópur skuli vera kominn með “eigið” húsnæði (þó að stólarnir séu ekki góðir við gömul bök og rassa), í öðru lagi að ný kynslóð skuli vera [...]