Þú ert hér://Tag: Áslákur Ingvarsson

„Svo kaldar, þessar hendur“

2025-12-07T13:34:08+00:007. desember 2025|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi á litla sviði Borgarleikhússins óperuna La bohème eftir Giacomo Puccini. Að venju hafa Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason þýtt líbrettó Luigis Illica og Giuseppe Giacosa á þjála, fyndna og fallega íslensku. Leikstjóri er sem fyrr Tómas Helgi Baldursson og tónlistarstjóri er sem fyrr Sævar Helgi Jóhannsson en nú hefur [...]

„Ég verð að taka þetta, elskan“

2025-06-22T15:36:01+00:0022. júní 2025|

Hallveig Rúnarsdóttir og Áslákur Ingvarsson endurlífga óperuna Símann eftir ítalsk-ameríska tónskáldið Gian Carlo Menotti (1922–2007) í Iðnó þessa viku. Þau sýndu hana á Óperudögum 2022 og ´23 þar sem hún naut mikilla vinsælda og í þessari viku er lag fyrir þá sem ekki sáu hana þá. Pálína Jónsdóttir leikstýrir, meðleikari á píanó er Hrönn Þráinsdóttir [...]

„Ódauðleg er ástin og eilíf hamingjan“

2024-12-02T15:02:38+00:002. desember 2024|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll vinsælu gamanóperuna Rakarann í Sevilla sem Gioachino Rossini samdi upp úr gamanleik eftir Frakkann Pierre Beaumarchais og frumsýndi 1816 í Róm. Sópraninn og tenórinn, Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason, þýða textann á einstaklega lipurt, fallegt og fyndið málfar sem nýtur sín vel með tónlistinni og [...]

Svikuli tenórinn og snjalli sópraninn

2024-03-25T10:34:28+00:0024. mars 2024|

Þau eru gífurlega skemmtileg og líka feikna flink unga fólkið í Sviðslistahópnum Óði sem nú færir okkur í þriðja sinn gamanóperur í Þjóðleikhúskjallaranum. Í þetta sinn er það ópera sem aldrei hefur sést hér áður á sviði, Póst-Jón eða Le postillon de Lonjumeau eftir franska tónskáldið Adolphe Adam (1803–1856). Enn er það sópraninn í hópnum, [...]

Hans og Gréta enn í vanda stödd

2023-12-12T14:11:57+00:0010. desember 2023|

Barnaóperan Hans og Gréta eftir þýska tónskáldið Engelbert Humperdinck og Adelheid Wette, sem var frumsýnd í Þýskalandi 1893 (undir stjórn Richards Strauss), er nú sett upp í þriðja sinn á íslensku, að þessu sinni á vegum Kammeróperunnar í skemmtilegri nýrri þýðingu Bjarna Thors Kristinssonar. Sýningin er í Tjarnarbíó, það er Guðmundur Felixson sem leikstýrir en [...]

„Glundroðamaskína í fjölkynja líkama“

2019-05-08T10:39:17+00:0015. mars 2018|

Óskabörn ógæfunnar frumsýndu í gærkvöldi leikritið Hans Blær eftir Eirík Örn Norðdahl, verk sem hefur verið kynnt á nýstárlegan hátt með eintómum neikvæðum (en einkar skemmtilega orðuðum) lýsingum. Maður kveið eiginlega fyrir að hlusta á textann af ótta við að hlustum manns yrði misboðið á hverri mínútu. Það gerðist ekki og þá er spurningin hvort [...]