Þú ert hér://Tag: Arnmundur Ernst Backman

Glanni glæpur slær loksins í gegn

2019-05-27T13:46:45+00:0015. september 2014|

Glanni glæpur, önnur þekktasta persóna Latabæjarsjónvarpsþátta Magnúsar Scheving,  þreytist seint á að ergja sig á fólki sem stundar íþróttir og borðar hollan mat. Maður hefði kannski haldið að hann lærði eitthvað á síendurteknum misheppnuðum tilraunum sínum til að fá íbúa Latabæjar ofan af þessu en – nei. Hann er enn að og nú (aftur) á [...]

Að geta eða geta ekki

2019-06-04T07:53:00+00:0011. apríl 2014|

Leikritið Útundan eftir Alison Farina McGlynn, sem var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum Háaloftsins, er í stíl róttæku áranna þegar bókmenntir áttu að hafa beinan samfélagslegan tilgang. Og McGlynn er ekkert að leyna því; verkið hennar er um barnleysi og hún sýnir það vandamál frá furðumörgum sjónarhornum á ekki lengri sýningu. Leikstjóri er [...]

Í kjallaranum

2019-06-12T11:09:55+00:009. febrúar 2014|

Bláskjár var ein af mínum uppáhaldsbókum í bernsku og ekki síst þess vegna var tilhlökkunarefni að sjá samnefnt leikrit Tyrfings Tyrfingssonar sem frumsýnt var á vegum Óskabarna ógæfunnar á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Mér er líka í fersku minni morðfyndinn einþáttungur Tyrfings á sama sviði í fyrra, „Skúrinn á sléttunni“. Tyrfingur hefur greinilega mikinn [...]

„Í alsælu vímunnar“

2019-06-12T14:58:27+00:009. október 2013|

Sýning Leikfélags Reykjavíkur á Jeppa á Fjalli eftir Holberg, Megas og Braga Valdimar Skúlason á Nýja sviði Borgarleikhússins minnir mest á partý sem hefur farið úr böndunum. Þar ægir ýmsum gerðum sviðssýninga saman – þetta er leikrit en líka söngleikur og tónleikar – og einhvern veginn „of“ af öllu. Benedikt Erlingsson leikstjóri hefur farið á [...]

Drauma-Smiðjan

2019-06-15T15:40:10+00:0024. mars 2013|

Ég fann fyrir tilfinningu eftir sýningu Nemendaleikhússins á Draumi á Jónsmessunótt í Smiðjunni í gærkvöldi sem sumt leikhúsfólk hefur fjölyrt um í ævisögum sínum: ég vildi að sýningin væri ekki búin heldur héldi áfram – eða byrjaði upp á nýtt! Mig langaði ekki til að rjúfa töfrana og fara út úr húsinu. Leikritið er auðvitað [...]