Þú ert hér://Tag: Árni Rúnar Hlöðversson

Fimm áttavilltar sálir með biskví í boxi

2019-03-15T10:01:59+00:0013. apríl 2018|

Mæðgurnar Auður Ava Ólafsdóttir og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir leggja saman krafta sína í poppóperunni Vakúm sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í gærkvöldi á opnun hátíðarinnar Vorblóts þar á bæ. Hugmyndin er Melkorku og útfærslan hennar og leikhópsins undir leiðsögn eða eftirliti Dóra DNA. Textinn er Auðar Övu en tónlistin er eftir Árna Rúnar Hlöðversson. Magnús [...]

Ástin er eilíf

2019-05-17T14:08:51+00:0025. apríl 2015|

Ellefu útskriftarnemar af leikarabraut Listaháskóla Íslands frumsýndu í gærkvöldi Að eilífu eftir Árna Ibsen í Smiðjunni undir stjórn Stefáns Jónssonar. Verkið var upphaflega samið fyrir slíkan útskriftarhóp árið 1997 og ég man að sýningin olli mér vonbrigðum af ýmsum ástæðum. Það gerði ekki frumsýningin í gær. Hún var eldfjörug, hugmyndarík í stóru sem smáu og [...]

Sjálfsblekkingarleikur

2019-05-22T11:50:02+00:0016. janúar 2015|

Það var hressandi að horfa á Háaloftskonur á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þær léku þar, sungu og dönsuðu nýtt leikverk eftir Auði Övu Ólafsdóttur, Ekki hætta að anda. Stefán Jónsson leikstýrði þeim og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir samdi dansana sem brutu upp framvinduna á afar þokkafullan hátt. Þessi sýning er eins ólík öðrum uppsetningum leikhúsanna [...]