Þú ert hér://Tag: Arndís Hrönn Egilsdóttir

Nóra, Nóra

2019-08-24T13:41:42+00:0031. desember 2014|

Dúkkuheimili Hörpu Arnardóttur á stóra sviði Borgarleikhússins er án nokkurs vafa ein skemmtilegasta uppsetning á leikriti Ibsens sem ég hef séð. Ég hef séð róttækari uppsetningu (Thomas Ostermeier á Schaubühne í Berlín sem líka var látin gerast í samtíma okkar) og klassískari uppsetningu (Ingmar Bergman í Konunglega í Köben) en Anne Tismer og Pernilla August [...]

Þegar Dóri litli var dæmdur vanhæfur Íslendingur

2019-05-22T13:38:47+00:0016. nóvember 2014|

Aldursbilið milli barns og unglings er ekki langt og ekki vel afmarkað en spennandi vegna þess hvað við erum opin, óræð og óráðin einmitt þá. Það er til dæmis þá sem við fáum gjarnan þá þráhyggju að við séum ekki í alvörunni þau sem okkur er sagt að við séum. Við getum ómögulega verið börn [...]

Í kjallaranum

2019-06-12T11:09:55+00:009. febrúar 2014|

Bláskjár var ein af mínum uppáhaldsbókum í bernsku og ekki síst þess vegna var tilhlökkunarefni að sjá samnefnt leikrit Tyrfings Tyrfingssonar sem frumsýnt var á vegum Óskabarna ógæfunnar á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Mér er líka í fersku minni morðfyndinn einþáttungur Tyrfings á sama sviði í fyrra, „Skúrinn á sléttunni“. Tyrfingur hefur greinilega mikinn [...]