Hlægilega sorglegur Tsjekhov
Nýjárs- og afmælissýning Leikfélags Reykjavíkur, Vanja frændi eftir Anton Tsjekhov, var frumsýnd í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Gunnar Þorri Pétursson þýddi verkið á tilgerðarlausa, auðskiljanlega og fallega íslensku og öll textavinna í sýningunni var aðdáunarverð. Sú einkunn átti sannarlega við fleira. Við erum stödd á sveitasetri Aleksanders Serebrjakovs prófessors í [...]