Ró-ró-rómantík
Nýjasta afurð Umbúðalaust-raðarinnar á þriðju hæð Borgarleikhússins er einleikur Önnu Margrétar Ólafsdóttur gjörningalistakonu, Rómantík. Hún kemur áhorfendum á óvart strax með uppröðun í salnum; okkur er nefnilega gert að setjast við einmennings skólaborð eins og í venjulegri (gamaldags) skólastofu. Þaðan horfum við á listakonuna sjálfa úti á svölum að róla sér. Það er auðvitað rómantískt [...]