Þú ert hér://Tag: Ágústa Eva Erlendsdóttir

Lína lifir

2019-05-27T13:56:23+00:0014. september 2014|

Það er ekki dregið úr því í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Línu Langsokk, sem var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, hvað Lína er ósvífin stúlka. Og fer ákaflega vel á því að láta Ágústu Evu Erlendsdóttur leika hana því allir muna ennþá hvernig hún kom eins og sprengja inn í íslenskan samtíma sem [...]

Ævintýraheimur á háaloftinu

2019-06-12T14:36:49+00:0020. október 2013|

Þetta var almennileg þriggja sýninga helgi af því að ég var fyrst núna að sjá Aladdín hans Bernds Ogrodniks á Brúðuloftinu í Þjóðleikhúsinu. Þar fer Bernd alveg fram úr sjálfum sér í sköpun á töfraheimi Þúsund og einnar nætur með margturna höllum, glitrandi fjársjóðshellum, eyðimörkum, sölutorgum og miklum fjölda brúða af ýmsum stærðum, bæði strengjabrúða [...]

„Út um trissur alls staðar eru tómir óvitar“

2019-06-12T14:50:15+00:0014. október 2013|

Barnaleikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gær, landsins börnum til mikillar ánægju. Gunnar Helgason stýrir því af sínu alkunna fjöri og hugmyndaauðgi og Ilmur Stefánsdóttir gerir litríka leikmynd sem er heilt ævintýri fyrir unga áhorfendur. Leikarar eru geysimargir og allt á iði á sviðinu í senum sem gerast utanhúss. Innanhúss [...]

Saga skjótta hestsins

2019-06-12T15:52:15+00:0021. apríl 2013|

Sjaldan hef ég á langri leikhúsævi séð leikara „taka salinn“ eins og Atli Rafn Sigurðarson gerði í gær á frumsýningu Engla alheimsins á stóra sviði Þjóðleikhússins. Ekki aðeins ávarpa salinn og gera hann að trúnaðarmanni sínum heldur stjórna honum eins og stórum kór eða sinfóníuhljómsveit. Enda „átti“ Atli Rafn sviðið alla sýninguna út í gegn [...]

Ris og fall Karíusar og Baktusar

2019-06-18T12:39:53+00:006. janúar 2013|

Sagan um Karíus og Baktus var fyrsta bókin sem hinn sívinsæli norski barnabóka- og leikritahöfundur Thorbjörn Egner gaf út (á norsku 1940, á íslensku líklega 1954) og hafði gríðarleg áhrif á heilsufar Norðmanna, að sögn landa hans, með því að bæta tannhirðu fólks. Ekki þori ég að fullyrða um áhrif hennar á lýðheilsu hér heima [...]

Að lifa lengi á lyginni

2019-06-19T10:25:42+00:0012. nóvember 2012|

Sögurnar af Múnkhásen barón hafa skemmt fólki alveg síðan á 18. öld þegar hann sjálfur var á dögum, fyrst í hans eigin frásögn, svo í endursögnum, misjafnlega trúum frumsögunum, í bókum ýmissa höfunda og loks í útvarpi og kvikmyndum. Það er ákaflega vel til fundið af Gaflaraleikhúsinu að rifja upp þessar sögur í fjölskyldusýningu sinni [...]