Þú ert hér://Tag: Adolf Smári Unnarsson

La donna e mobile

2019-05-10T14:21:56+00:0020. desember 2015|

Í Sýningu um ást og karókí sem þrír nemendur í sviðslistadeild Listaháskóla Íslands frumsýndu í húsnæði skólans í gær undirbýr Adolf Smári Unnarsson, Dolli, trúlofun sína og Dísu, skólasystur sinnar. Adolf Smára hef ég séð nokkrum sinnum áður í Stúdentaleikhúsinu og er alveg himinlifandi yfir því að hann skuli ætla að leggja þetta starf fyrir [...]

„Einræn krútt við hnattrænt tjútt“

2019-05-17T15:56:07+00:0011. apríl 2015|

Nú hefur Stúdentaleikhúsið hreiðrað um sig í nýju leikhúsrými að Strandgötu 75 í Hafnarfirði, ekki langt frá Gaflaraleikhúsinu. Þarna var bílaverkstæði en krakkarnir hafa aldeilis tekið til hendinni. Allt er hvítskúrað, snyrtilega málað, teppalagt og búið skemmtilegu samsafni af húsgögnum og leikmunum úr bílskúrum foreldranna. Þar frumsýndu þau svo í gær leikverkið MIG eftir sjálf [...]

Ekki stundarfriður fremur en áður

2019-05-22T13:26:05+00:0018. nóvember 2014|

Stúdentaleikhúsið sýnir nú í Perlunni sína útgáfu af Stundarfriði Guðmundar Steinssonar, verki sem Þjóðleikhúsið frumsýndi í mars 1979 og sló þá öll aðsóknarmet í því húsi auk þess sem það var sýnt víða um lönd og er jafnvel enn. Það fer sérstaklega vel á því að láta ungar manneskjur taka þetta verk fyrir því ef [...]

Doktor Fástus yngdur upp

2019-06-18T11:25:05+00:0013. mars 2013|

Þau ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur MR-ingarnir sem nú sýna Doktor Fástus í myrku ljósi í Tjarnarbíó. Þetta er um það bil 75 ára gamalt verk eftir bandaríska framúrstefnuhöfundinn Gertrud Stein og þar eru sannarlega ekki farnar beinustu leiðir að efninu en það varð dillandi skemmtilegt hjá krökkunum undir hugmyndaríkri stjórn [...]

Draumur í dós

2019-08-24T13:25:36+00:009. mars 2011|

Herranótt MR tekur þátt í Shakespeareveislu vetrarins með uppsetningu á Draumi á Jónsmessunótt undir stjórn Gunnars Helgasonar. Sýningin er í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi og hefur verið afar vinsæl, jafnvel svo að fólk hefur orðið frá að hverfa. Það má tína til margt til að skýra vinsældirnar. Fyrst það að þetta er eitt alskemmtilegasta leikrit meistarans, [...]