Þú ert hér:///febrúar

Skipstjórafrúin býður heim

2025-02-16T10:37:23+00:0016. febrúar 2025|

Sólbjört Sigurðardóttir sýndi einstaklingsverk sitt Grímu í Listaháskólanum um helgina. Leikstjóri og höfundur með henni er Gígja Hilmarsdóttir og þær stöllur sáu sjálfar um leikmyndina. Textann vinna þær úr samnefndri skáldsögu eftir Benný Sif Ísleifsdóttur (2018). Sólbjört ræðst ekki í neitt smáverkefni að láta skipstjórafrúna Grímu lifna við í stuttu leikverki. Upprunalega verkið er 370 ... Lesa meira

Kafteinn Frábær kemur til bjargar

2025-02-13T11:20:25+00:0013. febrúar 2025|

Ævar Þór Benediktsson og MurMur frumsýndu í gærkvöldi í Tjarnarbíó einleikinn Kafteinn Frábær eftir breska leikskáldið Alistair McDowall. Ævar Þór þýðir verkið sjálfur, leikstjóri er Hilmir Jensson, flókin og í hæsta máta merkingarbær ljósahönnunin er eftir Ólaf Ágúst Stefánsson en skikkju ofurhetjunnar sem kom til ýmissa nota hannaði Ásdís Guðný Guðmundsdóttir. Tónlistin er eftir Svavar Knút ... Lesa meira

Nýtt sjónarhorn

2025-02-13T10:26:21+00:0013. febrúar 2025|

Maó Alheimsdóttur: Veðurfregnir og jarðarfarir. Ós Pressan 2024. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2025. Eins og alltaf þegar ég þarf að koma reglu á heiminn stóð ég mig að því að skrifa lista á meðan ég las Veðurfregnir og jarðarfarir, fyrstu skáldsögu Maó Alheimsdóttur. Listinn bar yfirskriftina „Skrítin orð til að tékka seinna“ ... Lesa meira

Þá blöktu rauðir fánar

2025-02-13T10:28:07+00:0013. febrúar 2025|

Skafti Ingimarsson. Nú blakta rauðir fánar. Saga kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á Íslandi 1918–1968. Sögufélag 2024. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2025. Kommúnistaflokkur Íslands, KFÍ, og Sameiningarflokkur alþýðu, Sósíalistaflokkurinn, eru líklega þær stjórnmálahreyfingar íslenskar sem hvað rækilegasta umfjöllun hafa fengið en undanfarna áratugi hafa komið út fjölmörg rit, mismerkileg, þar sem farið er í ... Lesa meira

Að detta í tjörn – og náttúran opinberast

2025-02-13T10:28:32+00:0013. febrúar 2025|

Rán Flygenring: Tjörnin. Angústúra 2024. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2025. „Hundafiskur“!!! sagði þriggja ára snáði þegar afi var að lesa Tjörnina fyrir hann enn eina ferðina og dýralíf í ímyndaðri tjörn birtist, með moskítóflugum, froskum, skjaldböku, liljublómum og blöðum, hafmey og skrýtnum fiskum, einn þeirra var með stór eyru eins og á ... Lesa meira

Þeysireið inn í hyldýpi hugans

2025-02-13T10:39:50+00:0013. febrúar 2025|

Jónas Reynir Gunnarsson: Múffa. Mál og menning, 2024. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2025 Jónas Reynir Gunnarsson er fæddur árið 1987 og ólst upp í Fellabæ á Austurlandi. Múffa  er fimmta skáldsaga Jónasar Reynis, en auk skáldsagna hefur hann gefið út þrjár ljóðabækur. Hann hefur verið iðinn við kolann síðan fyrsta bók hans ... Lesa meira

Þeim var ég verst

2025-02-09T12:41:23+00:009. febrúar 2025|

Í gærkvöldi var frumsýning á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þar sagði Vilborg Davíðsdóttir okkur Laxdæla sögu – eins og má ímynda sér að sögumenn í baðstofum fortíðar hafi sagt hana, hver á sinn hátt. Vilborg hefur unnið með þessa Íslendingasögu lengi og það er ekki bara að hún kunni hana, hún hefur hana algerlega ... Lesa meira

Andvökunótt á heimili hjartalæknisins

2025-02-08T12:50:02+00:008. febrúar 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum nýtt leikrit eftir Hrafnhildi Hagalín, Heim. Leikstjóri er þjóðleikhússtjóri sjálfur, Magnús Geir Þórðarson. Búninga og leikmynd hannaði Filippía I. Elísdóttir, lýsinguna Björn Bergsteinn Guðmundsson en algerlega göldrótt tónlistin var eftir Gísla Galdur Þorgeirsson. Heim er klassískt að byggingu, gerist á einum stað á tæpum sólarhring, frá síðdegi, yfir kvöld ... Lesa meira

Holdið er torvelt að temja

2025-02-07T14:31:09+00:007. febrúar 2025|

Það er óperuhátíð í Reykjavík. Þrjár óperur, tvær gamlar, ein ný, eru nú sýndar í þrem húsum í höfuðstaðnum. Svo skemmtilega vill til að þær fjalla allar meira og minna um sama fólkið og eins og það sé ekki nóg þá tengjast sýningarnar innbyrðis á hinn skondnasta máta: aðaldívan í einni er hljómsveitarstjóri í annarri, ... Lesa meira

Brúðkaup á vínekrunni

2025-02-04T16:30:12+00:003. febrúar 2025|

Kammeróperan frumsýndi í gær á Nýja sviði Borgarleikhússins Brúðkaup Fígarós eftir W.A. Mozart. Texta Da Ponte þýddi Bjarni Thor Kristinsson og aðlagaði stórskemmtilega auk þess sem hann leikstýrir uppfærslunni. Tíu manna hljómsveit er bakatil á sviðinu og tónlistarstjóri er Elena Postumi. Leikmyndina hannaði Eva Björg Harðardóttir, Andri Unnarson sá um búninga en lýsingin var í ... Lesa meira