Þú ert hér://Tag: Vilhelm Þór Neto

*Not the singer

2019-05-08T09:53:59+00:001. júlí 2016|

Við fórum aftur í leikhús í gærkvöldi, nú í Tjarnarbíó á The Greatest Show in Iceland starring Björk Guðmundsdóttir – not the singer. Ég hef ekki verið dugleg að sjá sýningar á ensku fyrir erlenda ferðamenn, var þó um daginn búin að ná í miða á sýninguna í Hörpu um Íslendingasögur en varð að senda [...]

Ungt og leikur sér

2019-05-10T14:48:34+00:0011. nóvember 2015|

Við fórum í fyrsta skipti á Ungleik í Borgarleikhúsinu í gær og fannst satt að segja talsvert til um þá reynslu. Þarna voru leikin fimm stutt verk eftir jafnmarga höfunda, leikararnir og leikstjórarnir voru úr sama áhugamannahópnum um leiklist og það er mikils að vænta af þessu unga og ástríðufulla fólki. Fyrsta verkið, Sýslumaðurinn í [...]

„Einræn krútt við hnattrænt tjútt“

2019-05-17T15:56:07+00:0011. apríl 2015|

Nú hefur Stúdentaleikhúsið hreiðrað um sig í nýju leikhúsrými að Strandgötu 75 í Hafnarfirði, ekki langt frá Gaflaraleikhúsinu. Þarna var bílaverkstæði en krakkarnir hafa aldeilis tekið til hendinni. Allt er hvítskúrað, snyrtilega málað, teppalagt og búið skemmtilegu samsafni af húsgögnum og leikmunum úr bílskúrum foreldranna. Þar frumsýndu þau svo í gær leikverkið MIG eftir sjálf [...]

Ekki stundarfriður fremur en áður

2019-05-22T13:26:05+00:0018. nóvember 2014|

Stúdentaleikhúsið sýnir nú í Perlunni sína útgáfu af Stundarfriði Guðmundar Steinssonar, verki sem Þjóðleikhúsið frumsýndi í mars 1979 og sló þá öll aðsóknarmet í því húsi auk þess sem það var sýnt víða um lönd og er jafnvel enn. Það fer sérstaklega vel á því að láta ungar manneskjur taka þetta verk fyrir því ef [...]

Hamskipti Villa

2019-05-27T23:55:55+00:002. maí 2014|

Einstaka sinnum kemur fyrir að mér finnst ég vera orðin gömul (sem ég er) og í Perlunni í gærkvöldi komu augnablik þegar mér fannst ég hreinlega hundrað og eins. Þar var Stúdentaleikhúsið að sýna Djamm er snilld, verk eftir hópinn undir stjórn Tryggva Gunnarssonar, og það kom jafnvel fyrir að mér fannst að ég hefði [...]