Þú ert hér://Tag: Valgerður Rúnarsdóttir

Orkusprengjan Fíasól

2023-12-06T16:11:21+00:003. desember 2023|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gær barnaleikritið Fíasól gefst aldrei upp á stóra sviðinu. Textinn er unninn upp úr fimm geysivinsælum bókum eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur sem komu út á tímabilinu 2004–2018, og ekki er það síst síðasta bókin, samnefnd leikverkinu, sem setur svip sinn á sýninguna. Leikgerðina unnu þær Maríanna Klara Lúthersdóttir og Þórunn Arna [...]

Veslings Marat

2023-02-08T16:12:40+00:0027. janúar 2023|

Áhorfendum á Marat/Sade í Borgarleikhúsinu er boðið upp á tvær snilldarhugmyndir. Önnur er beinlínis leikritið sjálft, Marat/Sade eða ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn de Sade markgreifa eftir þýska leikskáldið Peter Weiss. Það er varla hægt að hugsa sér geggjaðri hugmynd en að horfa á frönsku [...]

Níðingslega lifandi Shakespeare

2019-06-13T18:20:18+00:0030. desember 2018|

Það segir sitt um álit manna og áhyggjur af ástandi heimsins að jólasýningar beggja stóru leikhúsanna skuli fjalla um viðurstyggð harðstjórnar. Í Þjóðleikhúsinu er skopast að Adolf Hitler en í Borgarleikhúsinu er rifjað upp rúmlega 400 ára gamalt leikrit Shakespeares um Ríkharð þriðja, kroppinbakinn sem myrti sér leið til konungdóms á Englandi. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir [...]

Er hlæjandi að þessu?

2019-05-27T15:57:07+00:0024. september 2018|

Það fer ekkert milli mála að efniviður háðsádeilu Guðmundar Brynjólfssonar, Svartlyngs, sem leikfélagið GRAL sýnir nú í Tjarnarbíó, er „Höfum hátt“-hreyfingin sem felldi ríkisstjórn í fyrra. Leikstjóri er líka Bergur Þór Ingólfsson sem stóð í miðju átakanna. Þessi efniskjarni er þó dulinn framan af. Vandræði Svartlyngs ráðherra (Sveinn Ólafur Gunnarsson) og ráðstýru hans (Sólveig Guðmundsdóttir) [...]