Eins og Hollywoodkvikmynd – bara betra
Sviðslistahátíðin ArtFart er hafin þótt ekki fari mikið fyrir henni í hinum venjulegu miðlum. Kannski finnst öllum sjálfsagt að Netið sjái um að kynna og auglýsa slíkt nú á dögum – enda eru það ábyggilega bara risaeðlur sem ekki eru á Facebook. Hátíðin er haldin á mörgum stöðum í bænum og stendur til 22. ágústs [...]