Þú ert hér://Tag: Tómas Gauti Jóhannsson

Þegar ástin er hnefaleikur

2019-03-13T17:15:06+00:0024. ágúst 2018|

Það er sniðug hugmynd á bak við verkið Allt sem er fallegt í lífinu sem Mooz menningarfélag sýndi sem verk í vinnslu í Félagsheimili Seltjarnarness núna í vikunni: Það túlkar samskipti kynjanna sem æfingu í hnefaleik. Sviðið er afmarkað með tvílitri ljósrönd, blárri hans megin, rauðri hennar megin, það er autt fyrir utan tvo stólkolla [...]

Aðallega uppi

2019-04-30T12:27:25+00:003. ágúst 2017|

Félagsheimili Seltjarnarness, vettvangur leiksýningarinnar Ég og minn bipolar bróðir eftir Tómas Gauta Jóhannsson, er furðu lítið notað undir slíkar menningarlegar uppákomur. Þetta er háklassískt félagsheimili, eins og þau sem voru byggð um allt land á mínum yngri árum, og alltof gott hús til að nota eingöngu undir afmælisveislur og þorrablót. Það fór ágætlega um fullan [...]

Meinvill í myrkrunum

2019-05-03T16:08:22+00:0027. nóvember 2016|

Stúdentaleikhúsið ræðst ekki á garðinn þar sem hann er þægilega lágur að þessu sinni. Undir stjórn Vignis Rafns Valþórssonar vinna þau sýningu sem þau kalla því hnyttna nafni Meinvillt upp úr umdeildu leikriti Edwards Bond Saved. Þau stytta verkið mikið og fjarlægja úr því alla fullorðna, unglingarnir eru einir eftir og leika lausum hala. Saved [...]

*Not the singer

2019-05-08T09:53:59+00:001. júlí 2016|

Við fórum aftur í leikhús í gærkvöldi, nú í Tjarnarbíó á The Greatest Show in Iceland starring Björk Guðmundsdóttir – not the singer. Ég hef ekki verið dugleg að sjá sýningar á ensku fyrir erlenda ferðamenn, var þó um daginn búin að ná í miða á sýninguna í Hörpu um Íslendingasögur en varð að senda [...]

Ekki stundarfriður fremur en áður

2019-05-22T13:26:05+00:0018. nóvember 2014|

Stúdentaleikhúsið sýnir nú í Perlunni sína útgáfu af Stundarfriði Guðmundar Steinssonar, verki sem Þjóðleikhúsið frumsýndi í mars 1979 og sló þá öll aðsóknarmet í því húsi auk þess sem það var sýnt víða um lönd og er jafnvel enn. Það fer sérstaklega vel á því að láta ungar manneskjur taka þetta verk fyrir því ef [...]