„Mér endist ekki ævin til að syrgja þig …“
Steinunn Sigurðardóttir er talsmaður ástarsorgarinnar í íslenskum bókmenntum. Í sögum og ljóðum hyllir hún þessa margræðu tilfinningu af slíkri snilld að lesandinn þráir um sinn ekkert heitar en fá að upplifa hana sjálfur. Og þó er þetta í grunninn eyðandi og banvæn kennd eins og Steinunn sýnir hvergi betur en í skáldsögunni Tímaþjófnum sem nú [...]