Hvað er auður og afl og hús …?
Það var margt sem gladdi og nærði fortíðarþrána á frumsýningu Hússins eftir Guðmund Steinsson á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Eitt var einfaldlega það að sjá eftir Guðmund leikrit sem aldrei hafði verið sett á svið áður; annað var að sjá hvað leikstjórinn, Benedikt Erlingsson, vísaði smekklega til þess í uppsetningu sinni að verkið hefði [...]