Þú ert hér://Tag: Þórir Sæmundsson

Leyndarmál og lygar

2019-09-05T21:46:17+00:0018. nóvember 2010|

Mojito eftir Jón Atla Jónasson var frumsýnt í gærkvöldi í nýuppgerðu og fínu Tjarnarbíói en þangað komst ég ekki. Þess í stað sá ég forsýningu kvöldið áður sem var eins og aðalæfingar eiga að vera til að frumsýningin verði góð, ansi misheppnuð! Greinilegt var að ýmsir gestanna vissu ekki hvort þeir voru komnir á staðinn [...]

Ævintýri Dísu ljósálfs

2019-09-05T21:53:04+00:0024. október 2010|

Það er erfitt að ímynda sér örlagasögur barna úr nútímanum sem jafnist á við átakanlega hrakfarasögu Dísu litlu ljósálfs sem allir Íslendingar þekkja. Hún villist að heiman og lendir fyrst í vondri vist hjá mennskum hjónum, skógarhöggsmanni og konu hans, síðan í óhugnanlegri barnaþrælkun lengst ofan í jörðinni hjá moldvörpu; þaðan bjarga froskar henni og [...]

Má ég fá meira?

2020-01-30T15:39:13+00:0027. desember 2009|

Á fjölmennum leiksýningum eins og Oliver! grípur mann sú tilfinning að einmitt til slíks brúks hafi leikhús verið hugsað: til að fylla sviðið af fólki, lífi og fjöri. Þegar barnahópurinn þrammaði inn í borðsal fátækrahælisins í upphafi frumsýningar í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi og raðirnar ætluðu engan endi að taka þá fylltist ég öryggistilfinningu, þetta yrði [...]

Rachel og Þórir

2020-01-31T15:39:29+00:0022. mars 2009|

Tveir ungir leikarar fengu að láta ljós sitt skína á litlum sviðum stóru leikhúsanna í vikunni sem leið. Þóra Karítas Árnadóttir túlkaði bandaríska píslarvottinn Rachel Corrie í lífi og dauða á litla sviði Borgarleikhússins undir stjórn Maríu Ellingsen, en á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins lék Þórir Sæmundsson – ja, einna helst lausum hala og laut engri utanaðkomandi [...]

Var Hollywood í Ármúlanum?

2020-01-31T16:42:33+00:002. maí 2008|

Ég vaknaði í morgun með lokasönginn í hausnum: “Ástin er diskó – lífið er pönk”. Kannski verður það smellur. En hápunktur kvöldsins fyrir mig var síðasta lag fyrir hlé, “Hiroshima” eftir Bubba Morthens, sem Nonni rokk (Þórir Sæmundsson) flutti af miklum krafti og reyndar frábærlega vel. Jafnaðist ekki á við höfundinn (hver gerir það?) en [...]