Mestu andstæðurnar
Upp úr gryfjunni framan við stóra svið Þjóðleikhússins líða tregafullir tónar, sárir en blíðir, veikir í fyrstu en styrkjast. Svo eru rauðu, þungu tjöldin dregin frá og við okkur blasir eyðiland. Gráir, grýttir melar, fallin girðing, nakin tré sem teygja greinar sínar angistarfullt til himins. Mistur eftir nýafstaðna stórskotahríð myrkvar sólina. Dauðir menn liggja eins [...]