Þú ert hér://Tag: Stígur Steinþórsson

Eins og allir aðrir – bara spes

2019-10-20T13:45:34+00:0020. október 2019|

Mamma klikk eftir Gunnar Helgason er meðal vinsælustu íslensku barnabóka þessarar aldar en það lá alls ekki á borðinu að hægt væri að færa hana á svið með góðu móti. Eins og allir sem hafa lesið hana vita geymir hún óhemju stórt leyndarmál sem við komumst ekki að fyrr en í lokin – og verðum [...]

Þið eruð ekki laus við mig

2019-05-16T16:47:58+00:0011. september 2015|

Edda Björg Eyjólfsdóttir vann afrek á sviði Kúlu Þjóðleikhússins í gær þegar hún frumsýndi 4:48 Psychosis, síðasta verkið sem enska leikskáldið Sarah Kane (1971-1999) skrifaði áður en hún drap sig. Edda er eini leikarinn á sviðinu í klukkutíma og tólf mínútur; tímalengdin er bundin í texta en passaði merkilega vel á frumsýningu. Með sér hefur [...]

Ekki mættu allir sem boðið var

2019-05-27T11:38:11+00:0024. nóvember 2014|

Leikhópur Mörtu Nordal og Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur, Aldrei óstelandi, frumsýndi í gærkvöldi leikgerð hennar og leikhópsins af verðlaunabók Einars Kárasonar, Ofsa, í Kassa Þjóðleikhússins. Verkið segir frá aðdraganda eins hörmulegasta glæps Sturlungaaldar, Flugumýrarbrennu, og endar á brennunni sjálfri. Þetta er auðvitað kvikmyndaefni og ekki augljóst hvernig má laga það að litlu sviði og fáum leikendum [...]

Rannsókn á kúgun

2019-06-12T11:57:03+00:0029. desember 2013|

Duttlungar lífsins hafa skikkað svo til að ég hafði aldrei séð Lúkas eftir Guðmund Steinsson fyrr en í gærkvöldi. Þá var það frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á vegum leikhópsins Aldrei óstelandi og undir stjórn Mörtu Nordal. Verkið kom mér mjög þægilega á óvart, það er fantavel skrifað og uppsetningin er hugkvæm, markviss og mögnuð. [...]

Við borgum ekki í Borgó

2020-01-30T16:57:57+00:007. júní 2009|

Það er eitthvað dásamlegt við tilhugsunina um að leikskáldið sem skrifaði farsann Við borgum ekki, við borgum ekki hafi fengið sjálf Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Þetta er arfavitlaust verk að öllu leyti – nema boðskapnum auðvitað – en svo hryllilega fyndið að maður missir sig gersamlega. Eins og einhver trúi því að fullorðinn karlmaður taki trúanlegt að kona [...]