Hvað er „ekta“?

2019-06-12T13:12:40+00:0031. október 2013|

Ég hef einu sinni staðið frammi fyrir málverki eftir Jackson Pollock. Það var ekki neitt „venjulegt“ Pollock-málverk (ef þau eru til) heldur „Blue Poles“, málverkið sem setti Ástralíu á annan endann fyrir fjörutíu árum af því forstjóri Þjóðarlistasafnsins í Canberra keypti það fyrir fáheyrða upphæð. Tæpir fimm metrar á breidd og rúmir tveir á hæð [...]