Þú ert hér://Tag: Sólveig Sigurðardóttir

„Svo kaldar, þessar hendur“

2025-12-07T13:34:08+00:007. desember 2025|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi á litla sviði Borgarleikhússins óperuna La bohème eftir Giacomo Puccini. Að venju hafa Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason þýtt líbrettó Luigis Illica og Giuseppe Giacosa á þjála, fyndna og fallega íslensku. Leikstjóri er sem fyrr Tómas Helgi Baldursson og tónlistarstjóri er sem fyrr Sævar Helgi Jóhannsson en nú hefur [...]

Holdið er torvelt að temja

2025-02-07T14:31:09+00:007. febrúar 2025|

Það er óperuhátíð í Reykjavík. Þrjár óperur, tvær gamlar, ein ný, eru nú sýndar í þrem húsum í höfuðstaðnum. Svo skemmtilega vill til að þær fjalla allar meira og minna um sama fólkið og eins og það sé ekki nóg þá tengjast sýningarnar innbyrðis á hinn skondnasta máta: aðaldívan í einni er hljómsveitarstjóri í annarri, [...]

„Ódauðleg er ástin og eilíf hamingjan“

2024-12-02T15:02:38+00:002. desember 2024|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll vinsælu gamanóperuna Rakarann í Sevilla sem Gioachino Rossini samdi upp úr gamanleik eftir Frakkann Pierre Beaumarchais og frumsýndi 1816 í Róm. Sópraninn og tenórinn, Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason, þýða textann á einstaklega lipurt, fallegt og fyndið málfar sem nýtur sín vel með tónlistinni og [...]

Svikuli tenórinn og snjalli sópraninn

2024-03-25T10:34:28+00:0024. mars 2024|

Þau eru gífurlega skemmtileg og líka feikna flink unga fólkið í Sviðslistahópnum Óði sem nú færir okkur í þriðja sinn gamanóperur í Þjóðleikhúskjallaranum. Í þetta sinn er það ópera sem aldrei hefur sést hér áður á sviði, Póst-Jón eða Le postillon de Lonjumeau eftir franska tónskáldið Adolphe Adam (1803–1856). Enn er það sópraninn í hópnum, [...]

„Á morgun mun hún elska mig!“

2021-10-22T13:38:41+00:0022. október 2021|

Gamanóperan Ástardrykkurinn eftir Donizetti var frumsýnd í Mílanó árið 1832 en er ennþá frísk og fjörug þrátt fyrir háan aldur, í það minnsta í meðförum sviðslistahópsins Óðs í Þjóðleikhúskjallaranum. Þau laga hana að sýningarstaðnum, láta hana gerast á kaffihúsi þar sem ein persónan vinnur og aðrar persónur eiga leið um. Snilldarhugmynd. Sviðið er á dansgólfinu [...]