Þú ert hér://Tag: Sigurður Þór Óskarsson

Sléttfull matskeið af sykri

2019-06-18T12:08:47+00:0023. febrúar 2013|

Ofurbarnfóstran Mary Poppins sviptist með austanvindinum inn á sviðið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi í skrautsýningu sem varla hefur áður sést slík og þvílík hér á landi. Söngleikurinn sem Richard og Robert Sherman sömdu ásamt Cameron Mackintosh upp úr kvikmyndinni frá 1964 og bókum P.L. Travers um söguhetjuna krefst margra sviðslistamanna og mikillar tækni og Borgarleikhúsmenn [...]

Að gæta bróður síns

2019-06-18T17:31:31+00:0030. desember 2012|

Þær voru ólíkar eins og stundum áður jólasýningar stóru leikhúsanna í Reykjavík. Í Macbeth Þjóðleikhússins var stílfærsla í algleymingi með tilfærslu í tíma og allt; í Músum og mönnum Leikfélags Reykjavíkur á stóra sviði Borgarleikhússins ríkir hefðbundið raunsæi, svo rækilega útfært að jaðrar við ofurraunsæi. En mig langar til að segja það strax að eftirbragðið [...]

Karamazov-fjölskylda á 21. öld

2019-06-19T11:08:48+00:0031. október 2012|

Það kemur fram í viðtali við Richard LaGravanese, annan höfund Bastarða sem nú eru sýndir í Borgarleikhúsinu, að innblásturinn hafi þeir Gísli Örn Garðarsson fengið úr skáldsögu Dostojevskís, Karamazov-bræðrunum. Þaðan spretta persónur verksins og litríkur textinn er undir áhrifum þaðan. Vissulega eru Bastarðar einfalt verk miðað við geysilanga og flókna skáldsöguna en írónían er lúmskari [...]

Órlendingar hafa orðið

2019-07-24T19:09:38+00:0021. apríl 2012|

Þau voru full af smitandi gleði og orku útskriftarnemarnir úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands á frumsýningu eigin leikverks í gærkvöldi. Enda kunna þau margt og fara vel með það sem þau hafa lært. Verkið heitir Óraland og er sett saman úr fjölmörgum atriðum eins og (gasalega langur) skemmtiþáttur í sjónvarpi. Umfjöllunarefnin eru ýmist tekin beint úr [...]