Tveggja mála fjölskyldudrama

2022-11-11T21:25:45+00:0011. nóvember 2022|

Á Íslandi eru tvö opinber tungumál en annað þeirra, íslenska táknmálið, sést ekki oft í stóru leikhúsum landsins. Það gerðist þó á frumsýningu leikritsins Eyju eftir Ástbjörgu Rut Jónsdóttur og Sóleyju Ómarsdóttur á litla sviði Þjóðleikhússins á fimmtudaginn í leikstjórn Andreu Elínar Vilhjálmsdóttur. Að sýningunni stendur O.N., sviðslistahópur sem samanstendur af döff og heyrandi listafólki, [...]