Þú ert hér://Tag: Sigríður Sunna Reynisdóttir

Fljúga marglitu fiðrildin

2019-05-27T16:39:52+00:0026. maí 2014|

Wide Slumber for lepidopterists (Djúpur dúr fyrir fiðrildafræðinga??) er tónverk utan um ljóðabók eftir Angelu Rawlings, sviðsett með þrem söngvurum af Söru Martí og VaVaVoom og sýnt í Tjarnarbíó. Tónlistin er eftir Valgeir Sigurðsson, seiðandi og svæfandi eins og hæfir verki um rannsóknir á svefni og lífsferli fiðrilda. Söngur Alexi Murdoch, Sasha Siem og Ásgerðar [...]

Hamlet light

2019-05-28T00:14:08+00:0012. apríl 2014|

Ég komst að því þegar ég var búin að bjóða föstum félaga mínum á barnsaldri á Hamlet litla í Borgarleikhúsinu að sýningin væri ætluð ellefu ára börnum og eldri. Félagi minn er sex ára. En ég gat ekki svikið hann, leikhús er hans líf og yndi, og ég sá ekki betur en hann héldi athygli [...]

Í fréttum var þetta helst

2019-06-19T11:49:28+00:0018. október 2012|

Þau kalla sig VaVaVoom, myndrænt leikhús með bækistöðvar í London og Reykjavík, og í kvöld frumsýndu þau í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu brúðuleikhúsverkið Nýjustu fréttir eftir Sigríði Sunnu Reynisdóttur, Söru Martí Guðmundsdóttur sem líka leikstýrir, og leikhópinn allan. Þetta er orðalaust verk að heita má, að vísu heyrum við orðaflaum á mörgum tungumálum úr útvarpi og [...]