Þú ert hér://Tag: Salka Gústafsdóttir

Tekist á í viðtengingarhætti

2026-10-16T14:18:52+00:0023. september 2026|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í síðustu viku í Kassanum nýtt verk eftir Kriðpleirsliðann Friðgeir Einarsson, Nýtt eldhús eftir máli. Björn Thors leikstýrir en leikmynd og búninga sjá þær um Elín Hansdóttir og Filippía I. Elísdóttir. Jóhann Bjarni Pálmason sér um lýsingu, Margrét Bjarnadóttir um sviðshreyfingar,  tónskáld  er Örvar Smárason en þeir Þóroddur Ingvarsson skapa saman sérkennilegan og [...]

Goðsaga fær nýtt líf

2026-10-16T14:36:37+00:0022. júní 2026|

Það dregur ekki fjöður yfir það, unga fólkið í Afturámóti, að það sé að vinna með gamalkunnugt efni í uppsetningu sinni á söngleiknum Með allt á hreinu í Háskólabíó. Þvert á móti leggja þau höfuðáherslu á það með því að skipa tvö úr hópnum, Gæruna Dýrleifu (Katla Þ. Njálsdóttir) og Stuðmanninn Skafta Sævars (Kristinn Óli [...]

Oh, my Cod!

2025-07-05T10:21:32+00:004. júlí 2025|

Það var mikið hrópað og hlegið í sal 1 í Háskólabíó þegar Afturámóti frumsýndi rapp/rokk-óperuna Þorskasögu eftir Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson. Hafsteinn leikstýrir sjálfur en hefur Kristin Óla Haraldsson með sér sem dramatúrg.  Glitrandi hreisturbúninga hannaði Hulda Kristín Hauksdóttir, tónlistarstjóri er Kolbrún Óskarsdóttir, afar mínimalíska leikmynd hannaði Egle Sipaviciute en kórstjórn sá Hanna Ragnarsson [...]

Hve glöð er vor æska

2025-03-15T17:12:22+00:007. mars 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi við mikinn fögnuð gesta söngleikinn Storm eftir Unni Ösp Stefánsdóttur og Unu Torfadóttur. Unnur Ösp leikstýrir; tónlist og textar eru eftir Unu nema eitt lag samdi hún með tónlistarstjóranum Hafsteini Þráinssyni og svo fengum við að heyra brot úr frægum lögum eftir aðra þegar mikið lá við. Glæsilega og afar snjalla [...]

Lífsháski ungra leikskálda

2024-11-10T13:35:53+00:0010. nóvember 2024|

Lokaviðburður á Unglist var Ungleikur í Tjarnarbíó, fimm stutt leikverk skrifuð af fólki í kringum tvítugt, valin úr hópi ennþá fleiri verka af sérstakri valnefnd. Listrænn ráðunautur og verkefnisstjóri var Magnús Thorlacius sem líka var kynnir á sýningunni í gær. Verkin taka fyrir ótrúlega ólík málefni en ekkert þeirra fjallar sérstaklega um unglingsárin sem manni [...]

Elskaðu náunga þinn

2024-08-11T16:46:58+00:0011. ágúst 2024|

Geim/vélmenna/stuðsöngleikurinn Vitfús Blú eftir Egil Andrason var frumsýndur í gærkvöldi hjá Afturámóti í Háskólabíó. Meðhöfundar eru Hafsteinn Níelsson og Kolbrún Óskarsdóttir. Tónlistin er líka eftir Egil og hana flytur sex manna hljómsveit á sviðinu af gífurlegu fjöri. Árið er 3033. Þrjú þúsund ár eru liðin frá krossfestingu Jesú sonar Maríu og vélmennin hafa í raun [...]

Þetta er ungt og leikur sér

2023-11-08T22:57:46+00:008. nóvember 2023|

Ég hef alls ekki fylgst nógu vel með fyrirbærinu Ungleik gegnum tíðina, þó að þau fáu skipti séu verulega minnisstæð. Og í gær sá ég fjögur stutt verk undir þessari yfirskrift í Tjarnarbíó og það var vægast sagt hressandi upplifun. Auglýst er eftir handritum og getur fólk á aldrinum 16–25 ára sent inn í samkeppnina. [...]

Í amerískum ævintýraskógi

2021-06-14T20:13:29+00:0014. júní 2021|

Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz hefur undanfarið sýnt söngleikinn  Djúpt inn í skóg (Into the Woods) eftir Stephen Sondheim (tónlist) og James Lapine (handrit) í Gaflaraleikhúsinu við miklar vinsældir. Leikstjóri er Orri Huginn Ágústsson og tónlistarstjóri Ingvar Alfreðsson en prýðileg þýðingin á bráðskemmtilegum textanum er eftir Einar Aðalsteinsson, Orra leikstjóra og Þór Breiðfjörð deildarstjóra. Söngleikurinn var [...]