Lífið er fokking ringulreið

2019-05-06T13:44:49+00:0016. október 2016|

Alveg er greinilegt strax í upphafi stutta leikritsins með langa nafnið sem var frumsýnt í Kúlu Þjóðleikhússins í gærkvöldi, Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér vöku en einhver djöfulsins fáviti, að einu persónu þess líður bölvanlega. Stefán Hallur Stefánsson stendur á miðju sviði Kúlunnar, framarlega, í leikhúsþoku og kvelst. Hann hreyfir sig ekki [...]