Á Íslandi erlendis
Ragnar Bragason hefur gert „öðruvísi“ utangarðsmenn að efni leikverka sinna – fólk sem af afar ólíkum ástæðum er utan við samfélag okkar „hinna“. Í Gullregni (2012) var það fólk sem alheilbrigt lifir á örorkubótum – kerfinu; í Óskasteinum (2014) voru það smákrimmar sem ætla að ná sér rækilega niðri á kerfinu með einu góðu bankaráni. [...]