„Þetta reddast alltaf fyrir rest“
Það er ys og þys í Ævintýraskóginum í Tjarnarbíó þar sem Leikhópurinn Lotta frumsýndi í dag Rauðhettu sína, tíu árum eftir að hún var fyrst sýnd í Elliðaárdalnum. Enn er Rauðhetta litla (Andrea Ösp Karlsdóttir) að reyna að komast til ömmu sinnar (Anna Bergljót Thorarensen) með kökur og vín en úlfurinn slyngi (Árni Beinteinn Árnason) [...]