Pólskt Ísland

2020-03-12T18:43:49+00:0012. mars 2020|

Fjölþjóðlegi hópurinn Reykjavík Ensemble frumsýndi í gær verkið Polishing Iceland undir stjórn Pálínu Jónsdóttur sem líka sá um búninga (þeir voru ansi fínir). Dramatúrg er Angela Rawlings. Heiti verksins er alger snilld, vísar bæði til algengra starfa Pólverja á Íslandi og þess hvað þeim hefur fjölgað hérlendis undanfarin ár. Sýningin er byggð á sjálfsævisögulegri smásögu [...]