Ólík andlit ástarinnar
Hvernig á maður að geta skrifað umsögn um sýningu þar sem leikarinn stígur niður af sviðinu og smellir á mann kossi eins og ekkert sé? Það var auðvitað „kyssikonan ægilega“, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, sem þetta gerði á frumsýningu Ástarinnar, einleiks með söngvum eftir Tómas R. Einarsson, í kjallara Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Og leikhúsbloggarinn var ekki [...]